Rafrænir lyfseðlar í gagnið á næstu mánuðum 3. september 2007 17:07 MYND/Anton Brink
Stefnt er að því að rafrænir lyfseðlar verði orðnir að veruleika alls staðar á landinu á fyrstu mánuðum næsta árs en verkefni þar að lútandi var hleypt af stokkunum í dag. Það var Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra sem hóf verkefnið á Selfossi þegar hann heimsótti Heilbrigðisstofnun Suðurlands.Fram kemur í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu að prófanir á þessu kerfi hafi staðið yfir síðan árið 2001, fyrst á Húsavík og síðar á Akureyri og nærsveitum. Læknar og apótek sem hafa tekið þátt í tilrauninni telja mikinn ávinning af þessu fyrirkomulagi.Ákveðið var að taka upp rafræna lyfseðla árið 2005 en innleiðingin hófst ekki fyrr vegna þess að ákveðið var að útfæra almenna samskiptaleið með heilbrigðisupplýsingar sem kæmi ekki eingöngu að notum fyrir lyfseðla heldur fyrir samskipti með heilbrigðisupplýsingar almennt. Sú samskiptaleið er nú tilbúin.Helmingur lyfseðla verði sendur rafrænt í árslokFyrsti áfangi verkefnisins um rafræna lyfseðla nær yfir sendingar lyfseðla frá flestum heilsugæslustöðvum, heilbrigðisstofnunum og sjúkrahúsum landsins. Áætlað er að þessum áfanga ljúki á yfirstandandi ári eða í byrjun næsta árs. Í framhaldi af því verður opnað fyrir sendingar frá öðrum læknum. Heildarfjöldi lyfseðla árið 2004 var tæplega 1.900 þúsund og er markmið verkefnisins að um helmingur allra lyfseðla verði sendur með rafrænum hætti við lok ársins.Fyrir sjúkling sem fer til læknis og fær lyfseðil breytist fyrirkomulagið þannig að í stað þess að fá í hendur pappírslyfseðil er lyfseðillinn sendur í lyfseðlagátt. Sjúklingurinn getur þá farið í hvaða apótek sem er og beðið um að fá lyfseðilinn afgreiddan. Sjúklingurinn getur einnig beðið um að lyfseðillinn sé sendur í ákveðið apótek, sem getur þá haft lyfin tilbúin þegar sjúklingurinn kemur.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Sjá meira