Vinnumálastofnun kanni samninga starfsmannaleiga og sjúkrahúsa 3. september 2007 16:21 MYND/Vilhelm
Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri - grænna og fulltrúi flokksins í félags- og tryggingamálanefnd, hyggst fara fram á það á fundi nefndarinnar í dag að Vinnumálastofnun kanni samninga sem heilbrigðisstofnanir hafa gert við starfsmannaleigur. Hann segist hafa séð samning hjá sjúkraliða á vegum starfsmannaleigu þar sem launin séu undir ákvæðum kjarasamninga.Félags- og tryggingamálanefnd Alþingis kom saman til fundar klukkan 16 þar sem meðal annars var ætlunin að fara yfir málefni erlendra starfsmanna í ljósi nýjustu tíðinda, en eins og greint var frá í síðustu viku voru tugir starfsmanna við vinnu við Kárahnjúka án tilskilinna leyfa. Það kom í ljós eftir rútuslys í Bessastaðabrekku í Fljótsdal.Full ástæða til að skoða málinAð sögn Guðbjarts Hannessonar, formanns félags- og tryggingamálanefndar, er ætlunin að fara yfir lagaumhverfið og framkvæmd laganna í þessum málaflokki. Ætlunin var að kalla meðal annars á fundinn fulltrúa Vinnumálastofnunar, ASÍ og yfirtrúnaðarmann að Kárahnjúkum. „Það eru brotalamir og full ástæða til að skoða þetta," sagði Guðbjartur fyrir fundinn en vildi heyra hvað gestir fundarins hefðu að segja áður en hann tjáði sig frekar. Óprúttnir aðilar geti nýtt sér ástandiðÞað var Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri - grænna, sem óskaði eftir fundinum. Hann sagðist í samtali við Vísi vilja fá gögn frá Vinnumálastofun í málinu en stofnunin væri eftirlitsaðili með vinnumarkaðnum hér á landi. Hann vildi fá upplýsingar um stöðuna við Kárahnjúka þar sem í ljós hefði komið að fjöldi verkamanna væri óskráður.„Svo hafa verið að koma upp fleiri mál," segir Ögmundur og vísar til samninga sem starfsmannaleigur, sem skipta við heilbrigðisstofnanir hér á landi, hafa gert. Hann hafi séð einn samning þar sem laun starfsmanns, sjúkraliða, hafi verið undir ákvæðum kjarasamninga. „Ég ætla að óska eftir því að Vinnumálastofnun fari fram á að sjá þessa samninga sem gerðir hafa verið við starfsmannaleigur á sjúkrahúsum," segir Ögmundur.Hann bendir á að allur gangur geti verið á slíkum samningum, bæði geti kjör verið betri en kjarasamningar kveði á um og hitt að fólk sé undir lögbundnum kjörum. „Það er ljóst að það eru miklar brotalamir á eftirlitinu. Ef ekki er brugðist við geta óprúttnir aðilar nýtt sér ástandið," segir Ögmundur.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Sjá meira