Einungis 13 prósent ferðamanna nýttu Strætó 3. september 2007 14:05 MYND/GVA
Einungis 13 prósent ferðamanna sem heimsóttu Reykjavík síðastliðinn vetur nýttu sér Strætó. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem gerð var fyrir Höfuðborgarstofu á fyrri hluta ársins. Könnunin leiddi enn fremur í ljós að rúmlega níu af hverjum tíu töldu reynsluna af borginni frábæra eða góða. Það er í samræmi við niðurstöður sem birst hafa síðustu úr sambærilegum könnunum síðustu ár. Í ljósi þeirrar umræðu sem verið hefur í þjóðfélaginu á síðustu misserum var einnig spurt hvort ferðamenn teldu borgina örugga. Niðurstaðan var sú að 94 prósent þeirra sem stunduðu næturlífið töldu að Reykjavík væri örugg en aðeins eitt prósent var á öndverðum meiði.Flestir þeirra sem heimsóttu höfuðborgina fóru á veitingahús eða um 76 prósent og 69 prósent fóru í sund. Um þriðjungur erlendra ferðamanna í Reykjavík sótti söfn eða sýningar síðastliðinn vetur en fyrr segir notuðu aðeins 13 prósent þjónustu strætós. Segir í tilkynningu frá Höfuðborgarstofu að greininlegt sá að gera megi almenningssamgöngur aðgengilegri fyrir ferðamenn.Sundið og heilsuböð borgarinnar fengu hæstu meðaleinkunn eða 8,5 en verslanir fengu lökustu einkunnina eða 5,9. Hafði þar hátt verðlag mest að segja.Í könnuninni var enn fremur spurt hvort fólk myndi mæla með Reykjavík sem áfangastað við aðra. Af þeim sem afstöðu tóku sögðust 95 prósent myndu mæla með Reykjavík og eru það mjög jákvæðar vísbendingar um áframhaldandi vöxt ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu, segir í tilkynningu Höfuðborgarstofu.Könnunin var gerð í Leifsstöð frá janúar til maí 2007. Alls svöruðu 1486 ferðamenn könnuninni eða 81% þeirra sem fengu hana í hendur.
Mest lesið Ekkja hins látna: „Hann var enginn barnaperri“ Innlent Móðir um sakborning: „Matthías er blíður og góður“ Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent „Unglingadrykkjan virðist vera orðin norm“ Innlent Alvarlegt hversu mörg börn skorti samkennd Innlent Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Erlent Ísland gat ekki gert losunarmarkmið ESB að sínu Innlent Ríkið braut á konu með því að láta mál hennar fyrnast Innlent Sjálfstæðisflokkurinn aftur orðinn stærstur í borginni Innlent „Ég segi bara að þögn er sama og samþykki“ Innlent Fleiri fréttir Sagði til myndbönd af Matthíasi að berja menn í tálbeituaðgerðum „Stórsigur fyrir réttlæti“ Þýskur herforingi í heimsókn á Íslandi Mannekla hjá lögreglu engin afsökun fyrir fyrningu mála Skoða hvort hægt sé að beita Ísrael refsiaðgerðum Gufunesmálið, Mannréttindadómstóll Evrópu og Sjálfstæðisflokkur stærstur í borginni Móðir um sakborning: „Matthías er blíður og góður“ Sjálfstæðisflokkurinn aftur orðinn stærstur í borginni Ríkið braut á konu með því að láta mál hennar fyrnast Ekkja hins látna: „Hann var enginn barnaperri“ Metaregn í hlýindum á Íslandi Miklir vatnavextir og Fjallabak illfært flestum bílum Alvarlegt hversu mörg börn skorti samkennd Ísland gat ekki gert losunarmarkmið ESB að sínu Skjálfti við Húsavík Byssan reyndist leikfang „Það er sú aðgerð sem mun hraðast slá á þetta misræmi“ „Nokkur fjöldi“ ísjaka 16 kílómetrum frá Tröllaskaga „Ég segi bara að þögn er sama og samþykki“ „Unglingadrykkjan virðist vera orðin norm“ Staðan ekki alvarleg í Haukadalsá Loka Bröttubrekku í tvo daga „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Minntust Jesse í Vesturbænum: „Það er mikill söknuður að virkilega góðum dreng“ Skýr mynd dregin upp í dómsal og minningarstund Hækkar frítekjumark vegna hækkunar örorkulífeyris „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Kjaraviðræður Sinfó „stefni í rétta átt“ Stöðupróf verði skylda í öllum skólum strax í vor „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Sjá meira