Innlent

Frístundakort gefin út á Skagaströnd

Hreppsnefnd Höfðahrepps, nú sveitarfélagsins Skagastrandar, ákvað á fundi sínum 27. ágúst að gefa út frístundakort fyrir alla einstaklinga í sveitarfélaginu á grunnskólaaldri.

Foreldrar í sveitarfélaginu eiga rétt á 15.000 króna endurgreiðslu fyrir tómstundastarf barna þeirra á tímabilinu 1. september 2007 til 31. ágúst 2008.

Í fundargerð frá hreppsnefnd Höfðahrepps segir að frístundakortið nái til starfsemi íþróttafélaga og skipulagðs félags- og tómstundastarfs, þar með talið list- og tónlistarnáms, sem stendur sex vikur eða lengur og er greitt fyrir með þáttökugjöldum. Starfsemin þarf að vera viðurkennd af sveitarstjórn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×