Innlent

SGS kynnir róttækar breytingar á veikinda- og slysakerfi

Frá formannafundi SGS í fyrra.
Frá formannafundi SGS í fyrra.

 

Á fundi Starfsgreinasambandsins þann 11. september munu verða kynnt róttæk uppstokkun á núvernadi kerfi starfsendurhæfingar, þar sem hlutverk og aðkoma aðila vinnumarkaðarins mun skipta sköpum, m.a. í samskiptum við stjórn- og heilbrigðisyfirvöld. Verður nýju kerfi Veikinda- slysa- og örorkuréttinda komið á laggirnar.

Á vefsíðu SGS segir að umræður um hið nýja kerfi hafi átt sér stað á vettvangi ASÍ/SA síðan í vetur leið, en framkvæmdastjórn SGS skipað þá bakhóp fyrir þeirra fulltrúa í viðræðunum við SA. Forysta SGS hefur einnig kynnt frumhugmyndirnar fyrir stjórnum aðildarfélaganna, þar sem skýr vilji stjórnarmanna stóð til þess að halda viðræðunum áfram við SA og að þróa hugmyndrinar. Sú vinna er langt á veg komin og skýrari mynd að koma í ljós.

Hið nýja kerfi gerir ráð fyrir auknum réttindum félagsmanna SGS og aukið hlutverk sjúkrasjóðanna, einkum vegna langvarandi veikinda og starfsendurhæfingar til að koma í veg fyrir varanlega örorku. Sjúkrasjóðum félaganna er ætlað að annist alla umsýslu og samskipti við þann sem veikist auk þess sem sérstakur ,,Áfallatryggingarsjóður," sem komið verður á fót, mun greiða laun þjónustufulltrúa, sérfræðinga greiningarteymis og kostnað vegna endurhæfingar.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×