Innlent

Ljósanóttin friðsæl það sem af er helginni

Ljósanóttin í Reykjanesbæ hefur farið fram á friðsælan hátt það sem af er helginni. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar gisti aðeins einn maður fangageymslur hennar í nótt vegna ölvunnar og einn var tekinn vegna ölvunaraksturs.

Þá var fíkiniefnadeildin með átak í gangi og hafði afskipti af nokkrum einstaklingum en engin stórmál komu upp á þeim vettvangi. Lögreglan segir að nóttin hafi verið eins og á meðalhelgi þrátt fyrir að mun meir af fólki hafi verið í bænum en venjulega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×