Dónaskapur að láta íbúana ekki vita af heræfingunni 29. ágúst 2007 15:39 Einar Örn Thorlacius: Dónaskapur að við erum ekki látin vita af þessari heræfingu.
Einar Örn Thorlacius sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar segir að hvorki sveitarstjórn, íbúar né lögregla í Hvalfirði hafi verið látin vita af sprengjueyðingaræfingunni Northern Challenge sem hófst í gærmorgun. "Þetta er hreinn dónaskapur að senda okkur ekki einu sinni fax eða tölvupóst um að þetta stæði til," segir Einar Örn. Æfingin fer að mestu fram innan og við nýja öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli en einnig í Hvalfirði. Á miðvikudag, 5. september, verður æft í Hvalfirði, en þá munu varðskip og þyrla taka þátt í æfingunni ásamt öðrum þátttakendum. Einar Örn segir að fyrir utan að enginn í sveitarfélaginu hafi verið látinn vita megi benda á að utanríkisráðuneytið hafi ákveðið að varnarsvæðið í Hvalfirði skyldi tekið í borgaraleg not frá og með 10. nóvember á síðasta ári og hafi forræðið yfir svæðinu þá verið flutt til fjármálaráðuneytisins. "Nú loks hefur fjármálaráðuneytið ákveðið að selja svæðið og eigurnar sem standa að því og við munum eiga fund með ráðuneytismönnum á morgun um það mál," segir Einar Örn. "Svæðið er sem sagt ekki lengur á forræði utanríkisráðuneytisins." Einar segir að áður en svæðið komst á forræði fjármálaráðuneytisins hafi sveitarstjórn, íbúar eða lögreglan í Borgarfirði aldrei fengið vitneskju um heræfingar af þessum toga í Hvalfirði. "Slík framkoma finnst okkur fyrir neðan allar hellur og við munum væntanlega taka upp málið við stjórnvöld," segir Einar Örn.
Mest lesið Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus Innlent Maðurinn á Esjunni er fundinn Innlent Orri Harðarson er allur Innlent Greta Thunberg á leið heim til Svíþjóðar Erlent „Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Innlent Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Innlent Níu látnir eftir skotárás í Austurríki Erlent Leitin ekki enn borið árangur Innlent Rekur bólusetningaráð stjórnvalda á einu bretti Erlent Fannst látinn í hlíðum Esjunnar Innlent Fleiri fréttir Grunur um að nefhjól úr flugvél hafi lent á Austurvelli „Fráleitt“ að halda að ríkisstjórnin bakki með veiðigjaldafrumvarpið Fannst látinn í hlíðum Esjunnar „Ert eiginlega hættur að finna lögreglumenn á samfélagsmiðlum“ Maðurinn á Esjunni er fundinn Ágúst Ólafur aðstoðar borgarstjóra Eldur í bílskúr á Álftanesi Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Persónuvernd lagði Landlækni en sektin milduð Rannsókn banaslyss í Brúará miði vel Guðrún spyr um há laun æðstu ráðamanna Fullyrðing um slaufun verknámsskóla „kolröng“ Rafmagn komið á aftur VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor Grunur um íkveikju á Hjarðarhaga Mættu heim til lögreglumanns og ógnuðu honum með hníf Orri Harðarson er allur Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus „Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Tilkynningum um nauðganir fjölgaði milli ára „Ég trúi ekki öðru en að þetta fari í gegn“ „Þetta er afturför í þjónustu við konur með endómetríósu“ Leit að göngumanni og ein harðasta árásin á Úkraínu Rafmagnslaust víða á Suðurlandi Leitin ekki enn borið árangur Reyndi að stinga lögreglu af á stolnum bíl Hljóðfæraleikarar að óbreyttu á leið í verkfall Leita týnds göngumanns Leita leiða til að auðvelda framsal fanga til heimalands síns Taka húfurnar úr sölu: Harma að „misheppnað grín“ hafi komið illa við fólk Sjá meira