Grunur um að kveikt hafi verið í sófa 27. ágúst 2007 12:45 MYND/Stöð 2
Grunur leikur á að kveikt hafi verið í sófa að Stuðlum með þeim afleiðingum að tvær stúlkur voru fluttar á sjúkrahús og húsið skemmdist töluvert. Rannsókn málsins stendur yfir og er búist við að stúlkurnar tvær verði yfirheyrðar síðar í dag. Eldurinn kom upp um þrjúleytið í gær í sófa í sameiginlegu rými sjúklinga á neyðarvistun meðferðarheimilisins. Tveimur stúlkum sem voru staddar í svefnherbergi inn af rýminu var bjargað af slökkviliði og þær fluttar á slysadeild með reykeitrun og brunasár. Starfsmaður á meðferðarheimilinu hafði verið með stúlkunum rétt áður en eldurinn kom upp en þurfti að yfirgefa þær stutta stund. Á meðan blossaði eldurinn upp og reyndi starfsmaðurinn að slökkva hann en varð svo frá að hverfa. Hann fór síðan sjálfur á slysadeild og fékk aðhlynningu vegna reykeitrunar. Slökkviliðið slökkti eldinn á um þrjátíu mínútum og eldurinn náði ekki að breiðast út til annarra herbergja á meðferðarheimilinu. Miklar skemmdir urðu á neyðarvistuninni og töluverðar reykskemmdir á húsinu öllu. Starfsmenn meðferðarheimilisins grunar stúlkurnar um að hafa kveikt í að því er segir í skýrslum lögreglu sem teknar voru af þeim. Málið er í rannsókn hjá rannsóknardeild sérrefsilagabrota lögreglunnar. Að því er fram kom í Fréttablaðinu í morgun þá var rætt stuttlega við stúlkurnar í gær. Lögreglan segir þó að þær hafi enn ekki verið yfirheyrðar. Það verði líklega gert síðar í dag.
Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Erlent Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Fleiri fréttir Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Sjá meira