Snúa flestir aftur til vinnu í vikunni Björn Gíslason skrifar 27. ágúst 2007 11:28 MYND/Gunnar Gunnarsson
Flestir starfsmanna Arnarfells sem lentu í rútuslysinu í Bessastaðabrekku á Fljótsdalsheiði í gærdag snúa til vinnu síðar í vikunni. Slysið hefur ekki áhrif á gang framkvæmda á vegum fyrirtækisins. Þrjátíu og einn maður frá Póllandi, Rússlandi og Lettlandi var í rútunni sem fór út af veginum í Bessastaðabrekku. Rútan hafnaði á klettavegg þannig að talsvert tjón hlaust af. Sextán menn voru fluttir á sjúkrahús, þar af níu til Reykjavíkur og voru tveir þeirra alvarlega slasaðir en ekki lífshættu. Að sögn Gísla Rúnars Rafnssonar, staðarstjóra Arnarfells við Hraunaveitu í Fljótsdal, þar sem mennirnir unnu, munu flestir mannanna snúa aftur til vinnu eftir tvo til þrjár daga. Að sögn Gísla er nú komið í ljós að fjórir menn sem fluttir voru á Heilbrigðisstofnun Austurlands eru ekki brotnir og þá eru tveir menn sem fluttir voru til Akureyrar á sjúkrahús ökklabrotnir. Tveir af þeim níu sem fluttir voru til Reykjavíkur hafa nú verið útskrifaðir en ekki liggur fyrir hvenær hinir verða það. Gísli Rúnar segir að þeir sem meiðst hafi meira í slysinu snúi til baka þegar þeir hafi verið útskrifaðir af sjúkrahúsi. „Þetta er þeirra heimili og hjá okkur fá þeir eins góða þjónustu og unnt er og í samræmi við ráðleggingar lækna," segir Gísli Rúnar í samtali við Vísi. Aðspurður segir Gísli að slysið hafi ekki áhrif á framkvæmdir Arnarfells við Hraunaveitu í Fljótsdal þar sem mikill fjöldi starfi nú fyrir fyrirtækið á svæðinu. Alls vinna nú 320 manns fyrir Arnarfell við sprengingu og borun veituganga Jökulsár í Fljótsdal, byggingu Ufsastíflu og Keldárstíflu og við gerð svokallaðs lokuhúss á svæðinu. Framkvæmdum á að vera lokið 2009.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kristrún á opnum fundi nefndar um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Sjá meira