Heimilin neydd til að taka dýr yfirdráttarlán 24. ágúst 2007 17:36
Hærri afborganir af húsnæðislánum og almennar verðhækkanir hafa neytt heimilin til að taka dýr yfirdráttarlán. Ríkissjóður og bankarnir hafa tekið til sín mest af góðæri undanfarinna ára, að mati lektors í hagfræði. Við sögðum frá því í fréttum okkar í gær, að yfirdráttarskuldir íslenskra heimila hafi aldrei verið hærri, þrátt fyrir hátt vaxtastig um þessar mundir. Heildar yfirdráttarlán heimilanna eru 75,6 milljarðar en af þeim greiða þau um 1,3 milljarða í vexti á mánuði. Vextir á yfirdráttarlánum geta verið allt að 25 prósent, sem fyrir tæpum tveimur áratugum voru kallaðir okurvextir á Íslandi. Guðmundur Ólafsson lektor í hagfræði segir að vaxtaokrið á Íslandi hafi verið að aukast. Vaxtaokrið sé meira hér en í flestum öðrum löndum. Íslendingar ættu sennilega heimsmet í vaxtaokri. Guðmundur segir að þeir tveir aðilar sem tekið hafi til sín obban af góðærinu á undanförnum árum séu ríkissjóður annars vegar og bankarnir hins vegar. "Ríkissjóður hefur aukið sinn hlut í heildarþjóðarekjum úr 35 % í 45% svona gróft talið," segir Guðmundur. Ríkið hafi því aukið sínar álögur. Þetta hafi hins vegar ekki bitnað þungt á almenningi vegna þess hvað góðærið hafi veri mikið. En þetta þýði að góðærið hafi að mestu farið til ríkisins og svo til bankanna. Ofan á hátt vaxtastig segir Guðmundur að bankarnir innheimti ólögleg gjöld af viðskiptavinum sínum. Þetta segir Guðmundur að sé ólöglegt samkvæmt íslenskum lögum. Þarna vísar Guðmundur í lög um neytendakaup, en þar segir "Seljandi getur ekki til viðbótar kaupverðinu krafist þóknunar fyrir að gefa út og senda reikning. "Ég kalla þetta bara ósvífni og því skyldu vestirnir því ekki vera komnir til með sama hætti, vegna ósvífni, bæði af hálfu stjórnvalda sem keyra hér upp okurvaxtastefnu í Seðlabankanum og svo auðvitað seðilgjaldaó´svífni," segir Guðmundur Ólafsson lektor í hagfræði við Háskóla Íslands.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri fréttir Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Sjá meira