Lágmarkslaun hækki um að minnsta kosti 30% 24. ágúst 2007 18:30
Forysta Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði telur að lágmarkslaun verði að minnsta kosti að hækka um 30% í næstu kjarasamningum. Erlendum félagsmönnum hefur fjölgað mikið í Hlíf á undanförnum árum og eru þeir nú um þriðjungur félagsmanna. Stjórn Hlífar í Hafnarfirði ályktaði í síðustu viku að lágmarkslaun verði hækkuð um að minnsta kosti 30 prósent við gerð kjarasamninga í stað þeirra sem renna út um áramót, en þau eru nú 125 þúsund krónur á mánuði. Kolbeinn Gunnarsson formaður Hlífar segir stjórn félagsins fyrst og fremst horfa til þess að hækka lægstu launin. Þau hafi dregist veruleg afturúr á undanförnum árum. Með þessu yrðu lágmarkslaun á bilinu 160 - 170 þúsund. Að auki vill stjórn Hlífar að skattleysismörk hækki í 140 þúsund á samningstímanum og fylgi launaþróun í landinu þar á eftir. Kolbeinn segir að Hlíf sé fyrir sitt leyti tilbúin að semja til allt að fjögurra ára, ef tryggingar verði nægar með tilheyrandi uppsagnarákvæðum. Kolbeinn segir að mesta hreyfingin sé á fólki í lægst launuðu störfunum og þar sem þau séu greidd sé mesta manneklan. En verulegar breytingar hafa átt sér stað á vinnumarkaðnum undanfarin ár í tengslum við uppsveifluna í efnahagslífinu. Þannig hefur fjöldi erlends vinnuafls á félagaskrá Hlífar tvöfaldast á undanförnum 5-10 árum en þeir eru nú um 30 % félagsmanna. Eftirspurnin eftir vinnuafli á Íslandi er mikil en nú er um 10% vinnuaflsins útlendingar eða um 20 þúsund manns. Þessi mikla eftirspurn gæti styrkt verkalýðshreyfinguna í kröfugerð sinni. Grétar Þorsteinsson forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ) segir að þessi staða ætti að geta styrkt kröfugerð verkalýðshreyfingarinnar í komandi samningum.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Fleiri fréttir Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Sjá meira