Innlent

Þrennt flutt á slysadeild eftir árekstur í Njarðvík

Þrennt var flutt á slysadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja eftir árekstur á Njarðarbraut í Njarðvík í morgun. Að sögn lögreglu varð óhappið við hringtorg á götunni þar ók einn bíll aftan á annan og sá þriðji þar aftan á. Meiðsli fólksins sem slasaðist í árekstrinum voru minni háttar en vissara þótti að senda það á sjúkrahús til skoðunar. Lögregla segir gáleysi um að kenna en áreksturinn var það harður að draga þurfti alla bílana af vettvangi með dráttarbíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×