Formaður Félags landeigenda við Jökulsá mun kæra úrskurðinn 24. ágúst 2007 13:25
Jónas Guðmundsson formaður Félags landeigenda við Jökulsá á Dal segir að ekki sé viðunandi að hlýta úrskurði matsnefndarinnar um bætur fyrir vatnsréttindin. Hann muni því kæra úrskurðinn og hann á von á að fleiri muni gera slíkt hið sama. "Það var mjög þungt hljóð í mönnum þegar niðurstaða nefndarinnar var kynnt," segir Jónas. Jónas segir að Félag landeigenda muni halda fund um málið þann 5. september n.k. með lögmönnum sínum og fara þar yfir stöðuna en þeir hafa sex vikna frest til að kæra. "Það var hinsvegar mjög jákvætt fyrir okkur að fá þetta sérálit sem kom fram," segir Jónas. Í séráliti því sem Egill B. Hreinsson prófessor við Háskóla Íslands skilaði segir m.a. að hann sé ósammála þeirri aðferð sem meirihluti nefndarinnar notaði til að meta bæturnar til landeigenda. Og þar með niðurstöðu nefndarinnar um þá heildarupphæð sem fundin var, það er 1,6 milljarður króna. "Ég tel að sú grundvallarbreyting sem átti sér stað við setningu raforkulaga 2003, þar sem markaður er innleiddur í stað opinbers einkasöluumhverfis, leiði óhjákvæmilega til gjörbreyttra forsendna og aðferða við mat á verðmæti vatnsréttinda miðað við fyrri forsendur." Og Egill bætir því að þetta viðhorf leiði að hans mati til mun hærri bóta en þeirra sem meirihlutinn komst að niðurstöðu um. Hvað hærri bætur varðar kom fram á Vísi fyrr í vikunni að Egill taldi að bæturnar ættu að nema a.m.k. 10 milljörðum kr. Hilmar Gunnlaugsson annar lögmanna landeigenda við Jökulsá á Dal bendir á í samtali við Vísi að þessi tala sé lágmarkið í útreikningum Egils. Samkvæmt töflu í sérálitinu gætu bæturnar numið allt að 65 milljörðum króna og að meðaltal útreikinga Egils sé upphæð upp á 35 milljarða króna. Þessar síðasttöldu upphæðir séu á svipuðum nótum og landeigendur hefðu farið fram á.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Fleiri fréttir Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Sjá meira