Hver einasti Íslendingur skuldar 250 þúsund í yfirdrátt 23. ágúst 2007 18:45
Hver einasti Íslendingur skuldar um tvöhundruð og fimmtíu þúsund krónur í yfirdrátt í bönkum og borgar fimmtíu þúsund krónur á ári í vexti. Heildaryfirdráttur landsmanna hefur aldrei verið hærri. Yfirdráttarlán landsmanna nema nú 75,6 milljörðum króna. Fyrir þá fjárhæð sem Íslendingar skulda bönkunum vegna yfirdráttarlána, gæti hver einasti landsmaður farið í dágóða hnattreisu.Af þessari miklu skuld þurfa Íslendingar að greiða verulegar fjárhæðir í vexti. Miðað við 20,5% yfirdráttarvexti, sem er fráleitt hæstu vextirnir á markaðinum, lætur nærri að vextirnir sem Íslendingar greiða vegna yfirdráttar á einu ári séu rösklega 15,5 milljarðar króna.Á hverjum mánuði eru Íslendingar því að greiða 1,3 milljarða króna í vexti vegna yfirdráttarlána. Ef horft er á einstakling sem er með 350 þúsund krónur í yfirdrátt, sem er mjög algeng fjárhæð í yfirdrátt, þá greiðir hann nærri sex þúsund krónur á mánuði í vexti og tæplega 72 þúsund krónur á ári til bankans síns vegna yfirdráttarins.Hjón með sama yfirdrátt greiða tæplega tólf þúsund krónur á mánuði og nærri hundrað fjörutíu og fjögur þúsund á ári í yfirdráttarvexti.Fyrir ársvextina getur fjögurra manna fjölskylda farið í bíó á hverjum einasta degi í heilan mánuð.Fyrir allan yfirdráttinn sem Íslendingar skulda bönkunum, þessa 75,6 milljarða króna, má kaupa skólamáltíðir fyrir 15 milljónir nemenda í heilan mánuð.Þá mætti kaupa að minnsta kosti fimm lið í ensku úrvalsdeildinni, til dæmis Derby, Middlesbro, Fulham og Íslendingaliðið West Ham auk Newcastle sem Íslendingar sýndu mikinn áhuga á að kaupa á dögunum.Fyrir yfirdráttinn má líka kaupa 50 þúsund og fjögur hundruð Toyota Yaris bíla og einungis fyrir mánaðarlega yfirdráttarvexti landsmanna, sem hljóða upp á tæpan 1,3 milljarða, má fylla tankinn fimm sinnum á hverjum einasta Yaris bíl.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Sjá meira