Vinna að útbreiðslu og lögleiðingu pókers 23. ágúst 2007 13:01
Nýstofnað Pókersamband Íslands opnaði formlega í dag heimasíðu sína en sambandið vinnur að útbreiðslu pókers og lögleiðingur mótapókers. Forseti sambandsins segir inni í myndinni að sækja um aðild að ÍSÍ. Pókersamband Íslands var stofnað í byrjun júlí en samkvæmt tilkynningu frá sambandinu er meginmarkmiðið þess að stuðla að því að áhugamannapóker í heimahúsum og mótapóker verði löglegur á Íslandi. Eins og fram kom í fréttum fyrr í sumar stöðvaði lögregla pókermót á vegum gismo.is og gerði ýmislegt upptækt. Davíð Hansson, forseti Pókersambandsins, segir að til hafi staðið að stofna sambandið en þær aðgerðir flýtt fyrir því að sambandið var stofnað. „Við hvetjum alla áhugasama til að skrá sig í félagið á síðunni og stuðla þannig að eflingu og uppgangi íþróttarinnar á Íslandi og mynda öflugt samfélag áhugamanna um póker," segir Davíð. Davíð segir að samkvæmt gildandi lögum séu pókermót eins og það sem haldið var fyrr í sumar á gráu svæði og það þurfi að fá á hreint hvort pókermót séu lögleg eða ekki. Beðið sé eftir því hvot lögregla hyggist leggja fram ákæru vegna mótsins en samkvæmt hans upplýsingum sé hún ekki enn komin fram. Ekker ólíkt móti í Hornafjarðarmanna Flestir lögfræðingar sem forsvarsmenn sambandsins hafi rætt við séu þeirrar skoðunar að pókermót séu ekkert öðruvísi en mót í Hornafjarðarmanna þar sem greiddur er aðgangseyrir og verðlaun veitt. Þá styðji nýfallinn dómur í Danmörku í sambærilegu máli málstað pókermanna en þar var formaður danska pókersambandsins sýknaður af ákæru um að hafa skipulagt fjárhættuspil með því að standa að pókermóti sem er sambærilegt við það sem gismo.is hélt hér á landi.Pókersambandið stefnir að því að halda mótaröð í haust og Íslandsmót í No limit Texas Hold'em. Ætlunin er svo að senda Íslandsmeistarann á stórt alþjóðlegt mót í framhaldinu. Davíð segir að beðið sé eftir því hvað komi út úr rannsókn lögreglunnar áður en ráðist verði í frekara mótahald.Talsmenn pókersins hafa líkt honum við skákíþróttina og benda á að í skákinni skrái menn sig til leiks á mótum og geti unnið verðlaunafé. Aðspurður hvort til greina komi að sækjast eftir inngöngu í Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands segir Davíð að það sé inni í myndinni. „Við viljum gera það sem þarf til þess að fá viðurkenningu á þessari íþrótt. Þetta er ekkert ólíkt skákinni ef fólk kynnir sér þetta. Bestu menn í heimi í póker eru ekki heppnustu menn í heimi," bendir Davíð á.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kristrún á opnum fundi nefndar um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Sjá meira