Hyldýpisgjá milli kirkju og þjóðar virði Þjóðkirkjan ekki niðurstöðuna Björn Gíslason skrifar 21. ágúst 2007 15:11 Óskar Óskarsson, prestur í Akureyrarkirkju, er afar sáttur við að meirihluti presta vilji staðfesta samvist samkynhneigðra.
Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur í Akureyrarkirkju, fagnar niðurstöðu í könnun á afstöðu presta til heimildar til að staðfesta samvist samkynhneigðra. Hann segir gott að vilji presta sé kominn fram og segir að hyldýpisgjá myndist milli þjóðar og kirkju verði ekki farið eftir niðurstöðu könnunarinnar og prestum veitt þessi heimild. Formaður Prestafélagsins býst við að málið verði til lykta leitt á Kirkuþingi um miðjan október.Óskar var annar þeirra presta sem lagði til á Prestastefnu á Húsavík í vor að könnunin yrði gerð eftir að tillögu um að prestum Þjóðkirkjunnar yrði heimilað að vera lögformlegir vígslumenn staðfestrar samvistar var vísað til kenninganefndar kirkjunnar. Töluverðar deilur spruttu á Prestastefnunni vegna málsins og Óskar segir að ekki hafi allir verið á eitt sáttir um könnunina. Hún sýnir að um tveir þriðju presta séu fylgjandi því að veitt verði heimild til þess að staðfesta samvist samkynhneigðra. Fjórðungur starfandi presta er því andvígur.„Við töldum okkur vita þetta og því kemur þetta ekki á óvart. Með þessari könnun vildum við sýna fram á að meirihluti presta sé fylgjandi breytingunum. Það er alltaf vont ef andstæðingarnir geta í skjóli þagnarinnar haldið því fram að ekki sé vilji til breytinga. Nú er þetta hins vegar morgunljóst og ég fagna því að þetta er lýðum kunnugt," segir Óskar.Erfitt fyrir Kirkjuþing að hunsa niðurstöðunaÍ könnuninni var spurt hvort prestar væru fylgjandi því að Kirkjuþing samþykkti að veita prestum þessa heimild sem bendir til þess að ætlunin sé að leiða málið til lykta á Kirkjuþingi sem haldið verður um miðja október. Kirkjuþing er nokkurs konar löggjafarsamkunda kirkjunar og fer með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar innan lögmæltra marka. Þar eiga sæti 29 kjörnir fulltrúar, 12 vígðir menn og 17 leikmenn, auk þess biskup Íslands, tveir vígslubiskupar og einn fulltrúi guðfræðideildar Háskóla Íslands með málfrelsi og tillögurétt.Óskar segir að það verði mjög erfitt fyrir Kirkjuþing að ganga fram hjá niðurstöðum þessarar könnunar. „Ef það gerist þá er eitthvað mikið að," segir Óskar og bendir á hér séu á ferðinnin eindregin skilaboð frá prestum. „Ef Kirkjuþing blæs á þetta þá tel ég að það hafi mjög alvarlegar afleiðingar, bæði fyrir samband Þjóðkirkjunnar og almennings og samband fulltrúa presta á Kirkjuþingi og presta í landinu," segir Óskar og talar um að myndast geti hyldýpisgjá milli þjóðar og kirkju.Ekki fullnaðarsigurÓskar segir þó að hér sé ekki um fullnaðarsigur að ræða því hann vilji taka skrefið til fulls. Hér sé rætt um að veita prestum heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra en að hans mati komi ekkert annað til greina en að breyta hjúskaparlögum svo samkynhneigðir geti gengið í hjónaband líkt og gagnkynhneigðir. „Annaðhvort erum við jöfn fyrir Guði og mönnum eða þá við búum til einhvers konar flokkun," segir Óskar. „Hjónaband á að vera öllum opið óháð kynhneigð."Málið til lykta leitt á KirkjuþingiSéra Ólafur Jóhannsson, prestur í Grensáskirkju og formaður Prestafélags Íslands, segir gott að niðurstaða sé komin í málið. Hann býst við því að málið verði tekið fyrir á Kirkjuþingi í október eins og biskup Íslands hafi lýst yfir fyrir nokkrum misserum. Aðspurður segist hann ekki hafa verið fylgjandi hugmyndinni að veita prestum heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra en segist hafa beitt sér fyrir því að könnun á afstöðu presta færi fram. „Það hefur ekki verið neitt leyndarmál að ég er andvígur þessu en málið hefur væntanlega sinn gang innan kirkjunnar," segir Ólafur.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Sjá meira