Innlent

Útflutningsverðmæti Becromal sambærilegt við það sem fiskvinnslufyrirtækin áorka

MYND/365

Össur Skarphéðinsson segir ekki ólíklegt að útflutningsverðmæti framleiðslu ítalska hátæknifyrirtækisins Becromal á aflþynnum verði sambærilegt við það sem fiskvinnslufyrirtækin á Akureyri áorka í dag. Fyrirtækið undirritaði í dag samning við Landsvirkjun um umfangsmikil raforkukaup til framleiðslunnar og einnig við Akureyrarbæ um lóð og aðstöðu.

Um tíu prósenta aukningu á raforkuframleiðslu Landsvirkjunar er að ræða og er orkuþörf verksmiðjunnar 640 gígavattsstundir á ári sem er fimm sinnum meira heldur en Eyjafjarðarsvæðið notar árlega. Strax verður hafist handa við að reisa verksmiðjuna og mun hún í fyrsta áfanga skapa um 40-50 ný störf sem síðar mun fjölga enn frekar með nýjum áföngum.

Langt er síðan Akureyrarbær leitaði með stuðningi Fjárfestingarstofu hófanna meðal erlendra fyrirtækja á þessu sviði orkufreks iðnaðar. Áhugi var fyrir því að finna leiðir til þess að innleiða úrvinnsluiðnað úr áli sem gefur kost á að auka fjölbreytni áliðnaðar og skapa ný hátæknistörf.

"Ég hef látið þá skoðun í ljós að orkufrekan iðnað eigi helst að byggja upp þar sem munar um hann í atvinnuþróun og aðdráttarafli búsetusvæðis," sagði Össur Skarphéðinsson í ræðu sem hann hélt í Listasafni Akureyrar við undirritun samninganna.

"Hér á Akureyri er afar gott að búa í haginn fyrir orkufrekan úrvinnsluiðnað þar sem hægt er að styðjast við þróað þjónustukerfi og langa hefð fyrir þróttmiklum iðnaði. Þar við bætist nálægð við fjölbreyttar orkulindir; vatnsaflið í vestri og jarðvarmann í austri. Það hentar raforkukerfinu vel að fá á Norðurlandinu miðju stóriðju af hóflegri stærð, sem nýtir betur raforkuna, sem fyrir hendi er og krefst ekki strax stórframkvæmda við nýjar virkjanir

Ég vil ennfremur lýsa ánægju minni yfir þátttöku íslenskra fjárfesta í þessu verkefni. Fjárfestingarfyrirtækið Strokkur hefur sýnt mikinn framfara- og brautryðjendahug með því að taka þátt í þessu átaki, sem vonandi á eftir að efla þekkingu okkar á léttmálmiðnaði auk þess að skila fjárfestunum nauðsynlegum hagnaði," sagði Össur

Becromal framleiðir rafhúðaðar álþynnum sem notaðar eru í rafþéttaiðnaði. Fyrirtækið er það stærsta á sínu sviði í Evrópu með starfsemi á Ítalíu, í Noregi, Sviss og Bandaríkjunum.


Tengdar fréttir

Nýtt hátæknifyrirtæki á Akureyri

Ítalska hátæknifyrirtækið Becromal mun hefja starfsemi á Akureyri á næstunni og mun fyrsti áfangi verksmiðjunnar skapa um 40-50 ný störf. Áætlað er að verksmiðjan muni rísa á næstu tveimur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×