Eina "álverið" í Reykjavík rifið innan skamms 9. ágúst 2007 18:53
Landsvirkjun ætlar að hætta rekstri eina álversins í Reykjavík um næstu mánaðamót. Ástæðan? Landsvirkjun mun afhenda Reykjavíkurborg gamla vararafstöðvarhúsið við Elliðaár til niðurrifs. Rafstöðin hefur stundum verið kölluð litla álverið en kælirásir í gólfinu hafa verið griðastaður fyrir ál - lifandi glerál. Landsvirkjun hefur afsalað sér þremur lóðum í Elliðaárdal til Reykjavíkurborgar án endurgjalds en í samkomulaginu skuldbindur Reykjavíkurborg sig til að rífa gömlu vararafstöðina sem sumum þykir fráleitt prýði. Þetta mikla mannvirki hýsti gufurafstöð þar sem katlarnir voru voru kynntir með kolum og olíu og jafnvel mó. Vatn var tekið úr Elliðaánum til kælingar og stokkur lá úr ánum inní stöðina. Í stokknum og í kælirásum hefur alltaf verið mikið um glerál sem gengur upp í árnar og má alveg eins reikna með því að hann komi í ljós í einhverjum mæli þegar húsið verður rifið. Álversnafnið, sem hefur verið notað í hálfkæringi, er auðvitað sótt í glerál sem hefur að sögn Benedikts Sigurðssonar hjá Landsvirkjun dálæti á vatnsinntakinu en sumir segja að álarnir hafi breytt rafstöðinni í álver í orðsins fyllstu merkingu. Margar hugmyndir hafa komið fram um að hafa starfsemi áfram í húsinu og hafa meðal annars komið tillögur frá arkitektum um meiriháttar breytingar á því. Benedikt sem hefur haft umsjón með Rafstöðinni segist ekki sakna hennar þótt hún hverfi.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sjá meira