Margir grunnskólar eiga eftir að ráða kennara Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. júlí 2007 15:51 Skólastarf hefst um miðjan ágúst. Mynd/ Hilli
Tuttugu og sjö grunnskólar í Reykjavík auglýstu eftir kennurum í Fréttablaðinu í gær, fyrir komandi skólaár sem hefst um miðjan ágúst. Skólastjórar sem Vísir talaði við segja að útlitið sé verra en í meðalári og sumir tala jafnvel um ófremdarástand. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, segir að ekki liggi fyrir nákvæmlega hversu margar stöður eigi eftir að manna. Málið skýrist í byrjun ágúst þegar sumarfríum ljúki. Júlíus Vífill segir ljóst að staðan sé misjöfn eftir skólum. Sumir séu með allt fullmannað en annars staðar vanti fólk. Hann segir þennan mun einfaldlega skýrast af því að misjafnt orð fari af skólastjórum og því skólastarfi sem sé í gangi í hverjum skóla fyrir sig. Nú sé hins vegar farð að fylgjast með skólum, hvernig þeim sé stjórnað og hvernig starfsandinn sé. Haldið verði áfram með þetta á næsta skólaári og þannig verði hægt að aðstoða skólastjóra við að bæta starf skólanna. Júlíus segir að ábyrgð skólastjóra hafi aukist mikið á liðnum árum. Nú séu þeir ekki einungis ábyrgir fyrir faglegu starfi skólanna heldur einnig rekstrarþættinum. Starf skólastjóra sé því mjög vandasamt. Skólastjórnendur segja að kennarar forðist launin og hverfi þess vegna til annarra starfa. Þá séu nýútskrifaðir kennarar ekki að skila sér inn í skólastarfið, Þeir fari frekar í framhaldsnám og endi í störfum sem séu óskyld grunnskólakennslu. Skólastjórar segja einnig að samkennsla hafi mælst misjafnlega fyrir meðal kennara og sé jafnvel fráhrindandi fyrir suma þeirra. Samkennsla feli það í sér að fleiri en einum árgang sé kennt í einu. Þeir segja að verið sé að þróa þetta fyrirkomulag en ekki sé víst að hægt sé að fullyrða um að það sé orsök þess hversu illa gangi að ráða kennara. Einn skólastjórinn sagði að samkennslan tónaði vel við þær hugmyndir sem yrðu sífellt vinsælli um svokallað einstaklingsbundið nám.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Erlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Fleiri fréttir „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Sjá meira