Fiski ekið þúsund kílómetra til vinnslu á Þingeyri 20. júlí 2007 18:53
Fiskur sem er unninn á Þingeyri er veiddur úti fyrir austfjörðum og fluttur landleiðina meira en þúsund kílómetra. Forkólfar Vísis hf. á Þingeyri segja úrslitaatriði að bæta vegakerfið á Vestfjörðum til að tryggja gæði hráefnis. Forvígismenn Vísis hf. vinna upp kostnað við flutningana með verkþekkingu og afköstum á Þingeyri. Hraðfrystihús Vísis hf. á Þingeyri leggur áherslu á að vinna afurðir úr ýsu og er hluti hennar heilfrystur. Skapast hefur mikil verkþekking á Þingeyri auk þess sem vinnslan er vel tækjum búin en lausnir eru frá tveimur íslenskum þekkingarfyrirtækjum 3X á Ísafirði og Marel tryggja mikla sjálfvirkni og góða nýtingu. Það sem er einstakt fyrir framleiðsluna á Þingeyri er að að hráefnið er flutt landleiðina alla leið frá Djúpavogi. Fiskur sem unninn er á Þingeyri er veiddur út af Djúpavogi og það tekur aðeins tvo tíma fyrir bátinn að stíma í land frá miðunum. Þá tekur við löndun og akstur eftir misgóðum þjóðvegum landsins. Ekið er upp á Hérað, um Þingeyjasýslu og í Eyjafjörð, um Skagafjörð og Húnavatnssýslu og norður Strandir. Þá er farið yfir Steingrímsfjarðarheiði og út Djúpið, í gegnum Vestfjarðagöng og um Önundarfjörð til Dýrafjarðar. Heildarvegalengdin er um þúsund kílómetrar og varla er hægt að fara lengri leið með fiskinn á þjóðvegunum í einni lotu. Á góðum degi tekur aksturinn um 12 klukkutíma. Fiskur unninn á Þingeyri fer á diskana hjá neytendum í Bandaríkjunum og Evrópu. Hann er tekinn með trukki suður til Reykjavíkur, liðlega 500 kílómetra leið, honum er útskipað og hann fluttur til Rotterdam, sem er í liðlega 2000 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík, til frekari dreifingar í Evrópu. Hann er einnig fluttur og til Boston í Bandaríkjunum, í nálega 4000 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík. Það er því óhætt að segja að fiskurinn frá Vísi fari víða.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Níutíu milljóna tjón vegna netglæpa á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Sjá meira