Umhverfissinnar mótmæla harðræði lögreglunnar 15. júlí 2007 19:02
Mótmælendur í samtökunum Saving Iceland saka lögregluna um harðræði og tilefnislausar handtökur en fimm voru handteknir í mótmælum umhverfissinna í Reykjavík í gærkvöldi. Hinir handteknu hafa allir verið leystir úr haldi en þeir hafa allir verið kærðir, meðal annars fyrir brot á umferðarlögum, fyrir að fara ekki að fyrirmælum lögreglu og fyrir ofbeldi gegn lögreglu. Þá eru einstaklingarnir einnig kærðir fyrir að hindra lögreglu í starfi. Lögreglan braut glugga á bíl sem fór fremstur við mótmælin í gærkvöldi þar sem ökumaður hafði læst að sér að sögn lögreglu og neitað að ræða við hana. Aksturslag ökumannsins þótti vítavert að mati lögreglu þar sem hann ók með farþega í kerru sem bíllinn hafði í eftirdragi. Lögreglan sagði auk þess að gríðarlegur hávaði hefði verið frá bílnum og nauðsynlegt hefði verið að slökkva á hljóðmagnara því almenningur hefði haldið neyðarlínu tepptri með umkvörtunum um hávaða. Ökumaður bílsins var handtekinn og sakar hann lögregluna um harðræði. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að lögreglan starfi eftir lögum og ekkert bendi til þess að lögreglumenn hafi farið út fyrir ramma laganna við störf sín í gærkvöldi. Að sögn lögreglu hafði ekki fengist leyfi fyrir göngu umhverfisverndarsinna í gær. Arinbjörn Snorrason, starfandi aðalvarðstjóri hjá lögreglunni, sagði að almannahagsmunir hefðu ráðið ferð í gærkvöldi, Snorrabrautin væri ein af stofnæðum borgarinnar og hefði lögreglan viljað halda þeirri götu án tálma til að tryggja öryggi almennings.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira