Beit lögreglumann í lærið 26. júní 2007 17:17 MYND/Pjetur
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á lögregluþjón og bíta hann í lærið. Atvikið átti sér stað fyrir skemmtistaðinn Áttuna í Hafnarfirði í nóvember í fyrra. Þangað var lögregla kvödd vegna þess að tilkynnt hafði verið um að maðurinn sem ákærður var hefði unnið skemmdarverk á skemmtistaðnum. Hann reyndist hins vegar viðskotaillur þegar lögregla ræddi við hann og færðu tveir lögreglumenn hann inn í lögreglubíl. Þegar verið var að koma honum fyrir beit hann annan lögreglumanninn í lærið. Maðurinn sagðist við yfirheyrslur ekki minnast þess að hafa bitið af ásetningi í læri lögreglumannsins. Hann aftók hins vegar ekki að það kynni að hafa gerst í hita leiksins en honum hafi fundist verulega að sér þjarmað í aftursæti lögreglubifreiðarinnar. Út frá framburði lögregluþjónanna og áverkum á öðrum þeirra þótti dómnum sannað að maðurinn hefði bitið lögreglumanninn. Maðurinn rauf með árásinni skilorð dóms vegna tveggja líkamsárása og var tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar.
Mest lesið Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Innlent Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Trump segir öfga-vinstrið bera ábyrgð á morðinu Erlent Quang Le stefnir Landsbankanum Innlent Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Innlent Vill draga Netanyahu fyrir dóm vegna árásarinnar í Doha Erlent Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Innlent Fékk milljón vegna afmælis kattarins Innlent Biður þingmenn að gæta orða sinna Innlent Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Erlent Fleiri fréttir 3,6 stiga skjálfti í Árnesi Ákall um íslenskukennslu: „Oft var þörf en nú er nauðsyn“ Vilja styttu af Gunnari í Gunnarsbrekku Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Quang Le stefnir Landsbankanum Fékk milljón vegna afmælis kattarins Ríkisstjórnin feli sig á bak við mistök þeirrar fyrri Um 100 þúsund lömbum slátrað hjá SS á Selfossi „Ísland á betra skilið“ Biður þingmenn að gæta orða sinna Stefnuræða forsætisráðherra á dagskrá í kvöld Óásættanlegt hversu margir falla fyrir eigin hendi Áhyggjuefni að menn missi stjórn á atburðarásinni Fundu fyrir jarðskjálfta í Hveragerði Kærður fyrir fjársvik fyrir að neita að borga Einbeittur brotavilji og óásættanlegur fjöldi sjálfsvíga Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Samfélagslega mikilvæg innviðafjárfesting að efla íslenska tungu Alþingi efnir til stefnuræðubingós Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Húsbrot á höfuðborgarsvæðinu: Oft sama fólkið sem brýst ítrekað inn í fleiri fjölbýlishús „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Segir gott að brugðist var við með valdi og NATO þurfi að sýna styrk Stilltu til friðar á óformlegum fundi í gær Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Hugsanlega verið að reyna á einingu NATO-ríkja Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Rússneskir drónar í pólskri lofthelgi og „sérstök“ ræða forseta Íslands Sjá meira