Fimm aukaferðir verði farnar á næstu tveimur vikum 26. júní 2007 16:39 MYND/GVA
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur óskað eftir því við Vegagerðina og Eimskip, sem rekur Herjólf, að skipið sigli þær fimm aukaferðir sem kveðið er á um í gildandi samningum á næstu tveimur vikum. Næstu tvær vikur verði svo nýttar til þess að ná samkomulagi um 20 aukaferðir sem ríkisstjórnin hafi lofað í vor. Elliði sagði í samtali við fréttastofu að á næstu tveimur vikum væru stórir viðburðir í Eyjum, Shell-mótið og Pæjumótið í knattspyrnu og Goslokahátíð. Því hefði verið óskað eftir því að fyrir Shellmót yrðu næturferðir farnar á morgun, miðvikudag, fimmtudag og svo aftur á sunnudag 1. júlí klukkan ellefu um kvöldið. Í kringum Goslokahátíð verði tveimur næturferðum svo bætt við, það er á fimmtudeginum 5. júlí og á sunnudeginum 8. júlí. Elliði segir þetta gert í þeirri trú að samgönguyfirvöld noti vikurnar tvær til þess að ná samkomulagi við Eimskip um 20 aukaferðir að næturlagi í sumar. Gert var ráð fyrir 30 milljónum króna í þær ferðir samkvæmt samþykktum ríkisstjórnarinnar en ekki hafa náðst samningar milli Eimskips og Vegagerðarinnar. Elliði segir að ef samningar náist ekki sé hætt við að ófremdarástand skapist í Eyjum flestar helgar, svo ekki sé minnst á til dæmis Þjóðhátíð þegar von sé á 7 til 8 þúsund gestum. Róbert Marshall, aðstoðarmaður samgönguráðherra, segir ráðherra hafa átt fund með vegamálastjóra í morgun vegna málsins. Þar hafi vegamálastjóri fengið fyriræli um að fara aftur að samningaborðinu og ná niðurstöðu.
Mest lesið Segir Kúbu að semja áður en það verður of seint Erlent Sérsveitaraðgerð á Selfossi Innlent Páfi hefur áhyggjur af tjáningarfrelsi á Vesturlöndum Erlent Þjóðverjar horfi í ríkari mæli að Norður-Atlantshafi Innlent Forsjá varla ákveðin útfrá erfðafræðilegum tengslum Innlent Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Innlent Banaslys í Rangárþingi Innlent Fleiri stelpur týndar en áður Innlent Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Innlent Bein útsending: Ráðherraskipti á ríkisráðsfundi Innlent Fleiri fréttir Forsjá varla ákveðin útfrá erfðafræðilegum tengslum Þjóðverjar horfi í ríkari mæli að Norður-Atlantshafi Sérsveitaraðgerð á Selfossi Fleiri stelpur týndar en áður Húsnæðismálin „helsti drifkraftur verðbólgu síðasta áratuginn“ „Evrópusambandið hefur haft sömu viðskiptastefnu og Trump“ Sviminn hvarf eftir aðgerðina og hækjan horfin Banaslys í Rangárþingi Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Bein útsending: Ráðherraskipti á ríkisráðsfundi Fyrsta ár Náttúruverndarstofnunar gekk glimrandi vel Inga vill skóla með aðgreiningu Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Meirihluti hlynntur aðildarviðræðum: „Margt breyst á stuttum tíma“ Meirihluti vill viðræður við ESB og mikið mannfall í Íran Grunaðir um íkveikju í eigin húsnæði Jóhanna Lilja, kartöflubóndi í Þykkvabæ, heiðruð Engin merki um gosóróa í skjálftahrinu á Reykjaneshrygg Inga um nýtt embætti og staða Íslands í alþjóðamálum Barn flutt á slysadeild með áverka eftir flugelda Þrír handteknir vegna gruns um íkveikju Bróðir Dags B „orðlaus“ yfir Kristrúnu „Klikkuð“ norðurljós fyrir utan Selfoss Stofna ný samtök gegn ESB aðild Miklar tafir vegna áreksturs í Vesturbæ Náið fylgst með stöðu mála í Venesúela hjá Útlendingastofnun Utanríkisráðherra Þýskalands fundar með Þorgerði Hryðjuverkamálið komið á dagskrá Hæstaréttar Seinka læknisskoðun fyrir endurnýjun ökuskírteina Íranir mótmæltu við stjórnarráðið Sjá meira