Verðbólgumarkmið næst ekki fyrr en í lok árs 2009, segir Glitnir 26. júní 2007 15:40 MYND/Heiða
Greiningardeild Glitnis býst ekki við að Seðlabankinn nái verðbólgumarkmiði sínu fyrr en undir lok árs 2009. Deildin gerir ráð fyrir að verðbólga lækki úr fjórum prósentum í 3,3 á milli júní og júlí og fari svo undir þrjú prósent í ágúst en hækki svo aftur fram á vor. Fram kemur í endurskoðaðri verðbólguspá greiningardeildarinnar að verðbólga hafi verið 6,9 prósent í upphafi árs en að hún hafi lækkað undanfarna mánuði. Reiknar greiningardeildin með að hún haldi áfram að lækka næstu tvo mánuði. Meðal þess sem leiðir til lækkunar vísitölu neysluverðs á milli mánaða að mati greiningardeildarinnar er nærri 10 prósent verðlækkun á fatnaði og skóm vegna útsala. Þá muni húsgögn og heimilisbúnaður lækka í verði í júlí auk tómstunda og menningar. Á móti þessum lækkunum kemur hækkun markaðsverð húsnæðis, en íbúðaverð er stærsti einstaki þáttur vísitölu neysluverðs. Enn fremur spáir greiningardeildin verðhækkunum hjá hótelum og veitingastöðum auk hækkunar á verði matvæla á milli mánaða. Sem fyrr segir býst greiningardeildin við að verðbólgan lækki niður fyrir þrjú prósent í ágúst en fari svo aftur að hækka vegna lækkunar á gengi krónunnar. Samkvæmt spánni mun verðbólga vera 3,5 prósent yfir þetta ár en 4,8 prósent yfir næsta ár en hún fer hæst í fimm prósent næsta vetur. Greining Glitnis býst svo við að gengið lækki fram á haustið 2008 en hækki þá og þá dragi aftur úr verðbólgu. 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans náist svo undir lok árs 2009.Helsti óvissuþáttur verðbólguspár Glitnis er gengisþróunin. Lækki gengi krónunnar fyrr má reikna með að verðbólgukúfurinn verði fyrr á ferðinni og að sama skapi mun það fresta verðbólguskoti ef gengi krónu helst hátt fram eftir næsta ári.
Mest lesið Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Innlent Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Fleiri fréttir Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent