Þrjú á gjörgæslu eftir kappakstur Björn Gíslason skrifar 22. júní 2007 12:10
Tveir piltar og stúlka liggja alvarlega slösuð á gjörgæsludeild Landspítalans eftir kappakstur tveggja bíla á Geirsgötu sem endaði með árekstri við Hamborgarabúllu Tómasar. Ungmennin voru í bíl sem ekið var vestur Geirsgötu í kapp við annan bíl um tvöleytið í nótt. Ökumaður bílsins, 18 ára piltur, missti stjórn á honum í beygjunni við Hamborgarabúllu Tómasar og flaug bíllinn inn á bílastæðið við Búlluna. Þar lenti hann framan á kyrrstæðum bíl og kastaðist þaðan á Búlluna sjálfa. Höggið var svo mikið að lögreglumenn við eftirlitsstörf við höfnina heyrðu þegar bíllinn skall á húsinu. Þeir kölluðu eftir aðstoð og þurftu slökkviliðsmenn að beita klippum til að losa ökumanninn úr bílnum. Hann og stúlka sem var farþegi í bílnum voru lögð inn á gjörgæsludeild og að sögn vakthafandi læknis þar eru þau alvarlega slösuð. Piltur sem var farþegi í bílnum fór í aðgerð vegna meiðsla sinna í nótt og eftir hana var hann jafnframt lagður inn á gjörgæsludeild. Ekki liggur fyrir hversu hratt ungi maðurinn ók þegar slysið varð en að sögn Margeirs Sveinssonar hjá rannsóknarsviði umferðardeildar var hann á ofsahraða miðað við hámarkshraða á staðnum sem er 50 kílómetrar á klukkustund. Ekki liggur fyrir hvort pilturinn og sá sem tók þátt í kappakstrinum á hinum bílnum verða ákærðir fyrir uppátækið en málið er í rannsókn. Lögregla lokaði veginum í nokkurn tíma vegna slyssins með því að leggja lögreglubíl þvert á veginn. Einn ökumaður lét hins vegar ekki segjast og ók fram hjá honum og stöðvaði lögregla hann. Reyndist hann vera ölvaður.
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Lífið Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Innlent Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent