Lamaðist eftir fyllerí Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. júní 2007 11:22 Haukur Örn Birgisson, lögmaður Reykjavíkurborgar, segir dóminn eðlilegan. Mynd/ Visir.is
Héraðsdómur sýknaði fyrir helgi Átt-kaup ehf, eigendur húsnæðisins að Laugarvegi 22, og Reykjavíkurborg vegna slyss sem átti sér stað þegar ungur maður féll niður stiga á skemmtistaðnum 22 með þeim afleiðingum að hann lamaðist. Maðurinn krafðist skaðabóta að fjárhæð ríflegra 30 milljóna króna á þeim forsendum að umbúnaður stigans sem hann féll í hafi verið óforsvaranlegur og mætti rekja slysið til hans. Eiganda hússins var stefnt vegna ábyrgðar á ástandi og umbúnaði stigans. Reykjavíkurborg var stefnt í málinu þar sem rekstraraðilinn, Plena ehf., hafði öll tilskilin leyfi frá Reykjavíkurborg til veitingarekstrar þegar slysið varð. Dómarinn taldi að stefnandi hefði ekki leitt sönnur að því að slysið og tjónið sem af því hlaust yrði rakið til þess að stigi veitingahússins eða umbúnaður væri óforsvaranlegur heldur yrði slysið alfarið rakið til óhappatilviks og ölvunar stefnanda sjálfs. Því bæri að sýkna stefndu af öllum kröfum stefnanda í máli þessu. Haukur Örn Birgisson, lögmaður Reykjavíkurborgar, segist vera ánægður með dóminn fyrir hönd borgarinnar. Dómurinn sé í samræmi við þá dómaframkvæmd sem ríkt hafi hér á landi í undanfarna áratugi. Áður hafi fallið dómar er varði bótaábyrgð opinberra eftirlitsaðila vegna skaðaverka sem hljótast af völdum meints vanbúnaðar í fasteignum. Sakarmat slíkra aðila sé almennt mjög vægt þannig að mikið þurfi að koma til svo að bótaábyrgð verði felld á opinbera eftirlitsaðila.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira