Hærri sektir draga ekki enn úr hraða Jón Örn Guðbjartsson skrifar 17. júní 2007 18:30
Þrátt fyrir hert viðurlög við hraðakstri hafði lögreglan í nógu að snúast við að stöðva ökumenn á ofsahraða um helgina. Þótt ökumenn geti átt á hættu að ökutæki þeirra verði gerð upptæk er hraðinn enn mikill. Ný og hert úrræði til að stemma stigu við hraðakstri virðast ekki hafa náð að slá á alla því lögreglan hafði í nógu að snúast um helgina við að stöðva þá sem gerðust brotlegir við umferðarlög. Sjálfvirkir hraðamælar vegagerðarinnar gefa nokkuð glögga mynd af akstri um þjóðvegina en þeir sýna að fjölmargir ökumenn aka langt yfir leyfilegum hármarkshraða. Lögreglan á Ísafirði hafði afskipti af ökumanni sem ók á 132 km. hraða á klukkustund á vegarkafla í Önundarfirði um helgina þar sem hámarkshraði er 90 km. Eftir hækkun hraðasekta á dögunum má þessi ökumaður búast við að greiða 90 þúsund krónur í sekt og fá ofan í kaupið 3 punkta í ökuferilsskrá. Annar ökumaður var mældur á ofsahraða nærri Hólmavík en hann var gripinn á 168 km. hraða. Hann verður að öllum líkindum sviptur ökuleyfi í 3 mánuði og þarf að greiða hundrað og fimmtíu þúsund krónur í sekt. Hann fær að auki 4 punkta í ökuferilsskrá. Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi, segir að hærri sektir séu ekki enn farnar að skila árangri en muni gera það. Sektir hafa breyst fyrir hraðakstur með þeim hætti að lægsta refsing er nú 10 þúsund krónur fari ökumaður á 96 til 100 kílómetra hraða á klukkustund, þar sem hámarkshraði er 90 km. Nú þarf ökumaður ekki að fara nema lítillega yfir 110 km. hraða til að greiða 50 þúsund króna sekt og fá að auki 1 punkt í ökuferilsskrá. Sektin fer upp í 70 þúsund rjúfi ökumaður 120 kílómetra múrinn og þá koma tveir punktar í ökuferilsskrána. Fari ökumaður yfir 140 km hraða verður hann sviptur, að lágmarki í 1 mánuð, lágmarkssekt er 130 þúsund og fjórir punktar verða færðir í ökuferilsskrá.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Fleiri fréttir Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Sjá meira