Aðeins þrjú bílastæði við Rétttrúnaðarkirkjuna 16. júní 2007 19:06
Í nýju deiliskipulagi fyrir Mýrargötusvæðið er gert ráð fyrir byggingu kirkju fyrir rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna, en aðeins sett skilyrði um þrjú bílastæði við húsið. Íbúar á svæðinu hafa gert athugasemdir við þetta enda töluverður skortur á bílastæðum í hverfinu. Miklar breytingar eru fyrirhugaðar á Mýrargötusvæðinu og reitnum á milli Mýrargötu og Nýlendugötu, en frestur til að gera athugasemdir við nýtt deiliskipulag svæðisins rann út í vikunni. Meðal annars er gert ráð fyrir að hluti Mýrargötu fari í stokk. Íbúar á svæðinu er hins vegar ekki ánægðir með allar þær breytingar sem gert er ráð fyrir, en m.a. á að byggja fyrstu rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna á reitnum við Mýrargötu 20. Íbúar í hverfinu eru óhressir með að ekki skuli hafa verið nægjanlega vel staðið að kynningu á svæðinu. Þeir eru líka óhressir með að ekki skuli vera gert ráð fyrir nema þremur bílastæðum. Í skipulagstillögunni er tekið fram að heimilt sé að byggja bílastæðahús í tengslum við byggingu kirkjunnar, en það er ekki gert að skilyrði. Nú þegar er rekið leikhús á svæðinu, Loftkastalinn, verslun tíu -ellefu og ýmis konar önnur starfsemi. Íbúar sem fréttastofan ræddi við segja að mjög erfitt geti verið að fá bílastæði við Nýlendugötu og þeir undrast að við þjónustustofnun eins og kirkju, sem verði væntanlega með athafnir á hverjum degi, sé ekki gerð krafa um fleiri en þrjú bílastæði. En að auki er gert ráð fyrir alls kyns þjónustu og dægrardvöl á gamla slippsvæðinu sem einnig muni kalla á aukna umferð bíla.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira