Lögregla kallar út mannskap á Akureyri 16. júní 2007 19:00
Lögreglan á Akureyri hefur kallað menn úr sumarleyfum vegna aukins viðbúnaðar í kvöld og nótt, vegna skrílsláta í bænum í gærkvöldi. Sjö líkamsárásir komu til kasta lögreglunnar á Akureyri síðast liðna nótt, en um helgina fara fram svokallaðir bíladagar á Akureyri. Allar fangageymslur voru margsetnar vegna þessa og segir lögregla helgina hafa farið af stað með svipuðum hætti og ef um verslunarmannahelgi væri að ræða. Um klukkan hálffjögur í nótt var lögregla kölluð til að tjaldstæðinu að Hömrum en þar hafði verið ráðist á mann. Þegar lögregla kom á staðinn til að ræða við árásarmanninn kom annar að og veittist að lögreglu. Mennirnir voru báðir handteknir og færðir í fangageymslur. Þá var lögregla kölluð að tjaldstæðinu á nýjan leik klukkustund síðar en þá höfðu brotist út hópslagsmál við innganginn. Ráðist var á gæslumann tjaldsvæðisins sem meiddist lítillega og annar var skallaður í andlit. Þar með var ekki öll nótt úti enn því um sexleytið brutust aftur út hópslagsmál á tjaldsvæðinu og voru tveir handteknir. Allt í allt var tilkynnt um 7 líkamsárásir á Akureyri í nótt. Auk þess þurfti lögregla að stöðva fjöldan allan af slagsmálum milli manna þó aðallega á tjaldsvæðinu að Hömrum og sinna útköllum vegna hávaða í heimahúsum. Lögreglan hefur í dag verið að búa sig undir það sem kann að gerast í nótt og hafa lögreglumenn á frívöktum og í sumarfríum verið kallaðir út.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira