Samvinnutryggingar lánuðu ekki til fjárfestinga einstaklinga 16. júní 2007 18:30
Þórólfur Gíslason, stjórnarformaður Eignarhaldfélagsins Samvinnutrygginga, segir ekkert hæft í því að einstaklingar hafi haslað sér völl í íslensku atvinnulífi með lántökum frá félaginu. Félagið hafi ekki lánað fé til einstaklinga til fjárfestinga heldur fjárfest sjálft í hlutabréfum og lítilsháttar í fasteignaskuldabréfum. Á fundi Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga í gær var ákveðið að slíta félaginu með formlegum hætti. Eignir og skuldir félagsins voru færðar til dótturfélagsins Gift fjárfestingarfélags ehf. Hlutir í því félagi koma til með að skiptast milli eigendanna sem eru fyrrum tryggingatakar Samvinnutrygginga g.t. sem áttu svokallaðan skilyrtan eignarrétt í eignarhaldsfélaginu. Eignarhlutirnir í hinu nýja félagi verða ekki afhentir fyrrum tryggingatökum fyrr en í fyrsta lagi í október nk. en þeir eru meira en 40 þúsund talsins. Stærsti eigandinn verður Samvinnusjóðurinn sjálfseignastofnun sem að sögn Þórólfs mun einbeita sér að því að veita fé til framfaramála. Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar hefur verið umsvifamikill fjárfestir á íslenskum hlutabréfamarkaði. Fjárhagslegur styrkur félagsins hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum samfara miklum gengishækkunum í fjármálafyrirtækjum. Þórólfur segir að höfuðstóll félagsins, sem nú hafi verið ávaxtaður með þessum hætti, sé einungis frá rekstri félagsins. Stærstu eignir félagsins eru hlutafé í Exista hf., íslenskum fjármálastofnunum og óbeinn eignarhlutur að tæpum þriðjungshlut í Icelandair Group hf. í gegnum Langflug ehf. Þegar Exista yfirtók VÍS á síðasta ári lauk beinni þátttöku Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga í vátryggingarekstri sem hafði staðið frá árinu1946. Þórólfur segir að félagið hafi verið leyst upp vegna þess að félagið hafi ekki lengur nein bein afskipti af tryggingamarkaði.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira