Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingar skipt upp 15. júní 2007 18:50
Ákveðið hefur verið að nýtt hlutafélag taki við öllum eignum og skuldum félagsins Eignarhaldsfélagsins Samvinnutryggingar í dag. Þessi ákvörðun var degin á fulltrúaráðsfundi félagsins í dag. „Hlutafé hins nýja félags verður m.a. skipt á milli fyrrum tryggingataka Samvinnutrygginga g.t. sem skipt hafa áfram við Vátryggingafélag Íslands hf. fram til 1. júní 2006 og áttu skilyrtan eignarrétt í Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingar. Hluthafar verða á fimmta tug þúsunda og eigið fé félagsins losar rúma 30 milljarða króna. Eignarhlutirnir í hinu nýja félagi verða ekki afhentir fyrrum tryggingatökum fyrr en í fyrsta lagi í október nk. Jafnframt var á fundinum ákveðið að slíta Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingar með formlegum hætti. Kosin var 3ja manna skilanefnd sem sjá mun um hið fjárhagslega uppgjör sem skiptunum fylgir. Eignir og skuldir Eignarhaldsfélagsins Samvinnutryggingar hafa verið færðar til dótturfélagsins Gift fjárfestingarfélags ehf. og það eru hlutir þess sem koma til skipta milli eigenda, en eignarréttur þeirra hefur verið skilyrtur hingað til. Eigið fé Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga losar nú 30 milljarða króna, en það endurspeglast nú í efnahag dótturfélagins Gift fjárfestingarfélags ehf. Stærstu eignir félagsins eru hlutafé í Exista hf., íslenskum fjármálastofnunum og óbeinn eignarhlutur að tæpum þriðjungshlut í Icelandair Group hf. í gegnum Langflug ehf, " segir í tilkynningu frá félaginu. Glitur ehf. verður eitt stærsta fjárfestingafélag á landinu Þá segir að Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar hafi áður verið gagnkvæmt tryggingafélag. Eigendur þess séu að stórum hluta til fyrrverandi tryggingatakar, síðustu tvö heilu rekstrarár Samvinnutrygginga g.t., sem haldið hafi viðskiptatryggð við Vátryggingafélag Íslands hf. eftir það. Stærsti einstaki eigandinn verði Samvinnusjóðurinn sjálfseignarstofnun, áður Samvinnutryggingasjóðurinn, en til sjóðsins hafi á umliðnum árum fallið skilyrt eignarréttindi þeirra fyrrverandi tryggingartaka sem látist hafa, orðið gjaldþrota, hætt starfsemi ef lögaðilar eiga í hlut eða hætt viðskiptum við Vátryggingafélag Íslands hf. Verkefni skilanefndarinnar sé að skipta hlutunum í Gift fjárfestingarfélagi ehf. á milli þessara aðila sem áður áttu skilyrtan eignarétt í félaginu. „Við skiptalok Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga, sem lýkur í fyrsta lagi næsta haust, þá munu á fimmta tug þúsunda fyrrum viðskiptamanna Samvinnutrygginga g.t. verða orðnir hluthafar í Gift fjárfestingarfélagi ehf., sem verður þá jafnframt eitt öflugasta og fjölmennasta fjárfestingarfélag landsins. Eigendum verður tilkynnt um niðurstöðu skilanefndar strax og hún liggur fyrir. Á fundinum var staðfest skipulagsskrá fyrir Samvinnusjóðinn sjálfseignarstofnun, sem verður stærsti einstaki hluthafi Gift fjárfestingarfélags ehf., sem hefur það að markmiði að ráðstafa arði af eignarhlutnum til samfélagsverkefna og almenningsheilla," segir í yfirlýsingu frá félaginu
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira