Láta ekki liðinn tíma hafa áhrif á komandi samstarf 23. maí 2007 11:30
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir stefnuskrá ríkistjórnarinnar endurspegla þau atriði sem flokkurinn lagði áherslu á fyrir kosningar. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir flokkana sammála um að láta ekki liðinn tíma hafa áhrif á komandi stjórnarsamstarf. Þetta kom fram í máli formannanna á blaðamannafundi á Þingvöllum fyrir skemmstu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagðist á blaðamannafundinum vera mjög sátt við stefnuskrána. Hún sagði flokkinn hafa lagt áherslu á 12 atriði fyrir kosningar og þau endurspeglist öll í stefnuskránni. Í því samhengi benti hún meðal annars á það markmið ríkisstjórnarinnar að bæta stöðu yngsta og elsta aldurshópsins í samfélaginu. Þá benti hún ennfremur á að tekið verði á kynbundnum launamun í samfélaginu og að sérstök áhersla verði lögð á umhverfismál. Samkvæmt stefnuskránni mun ríkisstjórnin gefa út yfirlýsingu þar sem stríðsrekstur í Írak verði harmaður. Samfylkingin hafði fyrir kosningar krafist þess að Ísland verði tekið af lista yfir hinar staðföstu þjóðir. Ingibjörg sagðist sátt við þessa niðurstöðu og benti á að ríkisstjórnin muni horfa til framtíðar en ekki fortíðar. Geir H. Haarde sagði flokkana sammála um að láta liðinn tíma ekki hafa áhrif á stjórnarsamstarf flokkanna. Þá verður komið á fót sérstakri nefnd til að opna umræðuna um Evrópusambandið hér á landi. Ekki var kveðið sérstaklega á um að stefnt skuli að inngöngu í bandalagið en flokkarnir tveir hafa ekki verið sammála í afstöðu til þess hingað til. Ingibjörg sagði ljóst að Samfylkingin vildi ganga lengra í þessum efnum en Sjálfstæðisflokkurinn. Hún sagði hins vegar mikilvægt að sátt ríkti um öll þau skref sem tekin væru í þessum efnum. Geir sagði að með stofnun nefndarinnar hafi flokkarnir sýnt vilja til að nálgast hvorn annan. Hins vegar sé það skoðun Sjálfstæðisflokksins að afstaða Íslendinga til sambandsins eigi að byggjast á hagsmunum og þeir mæli ekki með inngöngu í sambandið eins og sakir standa.
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna Erlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira