Ríkið dæmt til að greiða yfir 2 milljónir vegna ólögmætrar uppsagnar 22. maí 2007 14:27 MYND/AB
Íslenska ríkið var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag gert að greiða fyrrum starfsmanni á varnarsvæðinu á Miðnesheiði rúmar 2 milljónir í skaðabætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Manninum var sagt upp vegna trúnaðarbrests. Maðurinn gegndi starfi sýningarstjóra og framkvæmdastjóra kvikmyndahússins á Keflavíkurflugvelli. Var hann búinn að gegna því starfi í tæp ellefu ár þegar honum var sagt fyrirvararlaust upp í febrúar á síðasta ári. Krafðist maðurinn að ríkið greiddi honum laun út fjögurra mánaða uppsagnarfrest. Ástæða uppsagnarinnar var sögð vera trúnaðarbrestur en manninum var gert að hafa misnotað aðstöðu sína sem framkvæmdastjóri kvikmyndahússins. Meðal annars með ólöglegum flutningi ótollafgreidds varnings af varnarsvæðinu og með því að selja Íslendingum aðgang að kvikmyndahúsinu. Ákæra á hendur framkvæmdastjóranum vegna þessa máls var hins vegar dregin til baka í síðastliðnum febrúarmánuði. Þar sem ekki lá fyrir annað en ætluð brot í starfi féllst dómurinn á kröfu mannins og gerði ríkinu skylt að greiða manninum tæpar 2,4 milljónir króna í samræmi við uppsagnarfrest ásamt vöxtum.
Mest lesið Hjalti Snær sá sem fannst látinn Innlent Bað lögreglustjóra að „veita framvegis réttar upplýsingar“ Innlent Þrettán skemmtiferðaskip og Ísland uppselt Innlent Synir El Chapo sagðir hafa myndað afdrífaríkt bandalag Erlent Strandveiðibátur strandaði á hólma á Reykjanesi Innlent Samhjálp í kapphlaupi við tímann Innlent Mótmæla við utanríkisráðuneytið Innlent Áfram hlýtt og bjart en lægð nálgast Veður SÍS tekur undir kröfu Borgarbyggðar um kostnað vegna flóttamanna Innlent Senda farandfólk frá Asíu til Suður-Súdan Erlent Fleiri fréttir Dvöl á Hrauninu fram undan eftir kókaínsmygl Hefja átak í HPV-bólusetningu í vetur Seðlabankinn heldur áfram að lækka vexti og mótmæli við utanríkisráðuneytið Hjalti Snær sá sem fannst látinn Samhjálp í kapphlaupi við tímann Gefa sér þrjá mánuði til að leggja drög að Coda-stöð á Bakka Þrettán skemmtiferðaskip og Ísland uppselt Mótmæla við utanríkisráðuneytið Strandveiðibátur strandaði á hólma á Reykjanesi SÍS tekur undir kröfu Borgarbyggðar um kostnað vegna flóttamanna Bað lögreglustjóra að „veita framvegis réttar upplýsingar“ Langjökull eigi ekki ýkja mörg ár eftir Fæstir bera nægilega mikið af sólarvörn á sig Neyðarástand hjá Villiköttum sem senda frá sér ákall Vita upp á hár hvernig lýðræði virkar eftir krakkakosningar Óbreytt ástand kemur ekki til greina „Það er bara dýrt að vera fátækur“ Smáskjálftahrina á Reykjanesskaga Viðbúnaður í Djúpinu, böndum komið á áfengissölu og stútfull herbergi af köttum 32 sóttu um stöðu mannauðsstjóra hjá Matvælastofnun Fimm keyptu gám sem er ekki til Brá sér í túristalíki og segir leigubílstjóra hafa okrað á sér Framtíðarnefnd lifir og formaðurinn fær tvær milljónir á ári Burðardýr í flugvél Play „fríkaði út“ Kjarasamningur lyfjafræðinga „illa felldur“ og átján ára bið lengist Tvær konur sluppu úr brennandi bíl „Þetta fór eins vel og kostur var“ Ekki eigi að stunda atvinnu sem valdi dýrum þjáningu Meirihlutinn á Ísafirði fallinn Líkur á eldgosi aukast með haustinu Sjá meira