Hlé á viðræðum um myndun stjórnar meðan ákveðnum málum er lent 21. maí 2007 18:29
Formenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar tilkynntu á tröppum Ráðherrabústaðarins nú síðdegis að þeir hefðu gert hlé á viðræðum um ríkisstjórnarmyndun. Ekki er ákveðið hvenær næsti fundur verður. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir hléð gert vegna þess að ákveðnum málum þurfi að lenda.Stjórnarmyndunarviðræðum Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar var framhaldið í Ráðherrabústaðnum við Tjörnina í dag eftir langa fundi á Þingvöllum um helgina. Forystumenn flokkanna funduðu til klukkan ellefu í gærkvöldi í þjóðgarðinum og voru þá lengst af fjórir fulltrúar frá hvorum flokki. Í dag voru það hins vegar aðeins tveir sem mættu fyrir hönd hvors flokks, þau Geir H. Haarde og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokk og þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Össur Skarphéðinsson fyrir Samfylkinguna. Fundurinn hófst með sameiginlegum hádegisverði klukkan hálfeitt. Það voru svo tæplega fjórum tímum síðar, þegar klukkan var tíu mínútur gengin í fimm, sem formennirnir gengu niður tröppur Ráðherrabústaðarins. og skýrðu frá því að hlé hefði verið gert á viðræðunum þar sem lenda þyrfti ákveðnum málum. Þau vildu hins vegar ekki skýra frá því hvaða mál þetta væru. Ingibjörg Sólrún sagði fyrr í dag að Samfylkingarfólk myndi nota kvöldið til að kveðja fráfarandi þingmenn. Þótt ekkert sé ákveðið um næsta viðræðufund flokkanna má fastlega gera ráð fyrir að fundað verði á morgun.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Fleiri fréttir Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Sjá meira