Skilorðsbundið fangelsi fyrir ölvunarakstur og fíkniefnabrot 21. maí 2007 14:34 Mynd/Vísir
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ölvunarakstur og fíkniefnabrot. Þá var hann dæmdur til að greiða nærri 170 þúsund krónur í sekt. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa haft lítilræði af hassi í fórum sínum þegar lögregla í Vestmannaeyjum leitaði á honum þegar hann kom með Herjólfi til Eyja skömmu fyrir jólin 2005. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hafa stolið bíl í Eyjum og ekið honum undir áhrifum áfengis og án ökuskírteinis. Enn fremur var hann ákærður fyrir að hafa í annað sinn ekið undir áhrifum áfengis og reynt að flýja frá lögreglu þegar hún hugðist hafa afskipti af honum. Maðurinn viðurkenndi fíkniefnabrot sitt og síðari ölvunaraksturinn en sagðist ekki muna eftir hvort hann hefði stolið bíl og ekið honum fullur sökum of mikillar ölvunar. Ýmsir munir tengdir manninum fundust í bílnum og taldi dómurinn því langlíklegast að maðurinn hefði einhvern tíma umrædda nótt komið í bifreiðina. Hins vegar hefði enginn orðið vitni að því þegar hann ók bílnum og þá hefði lögregla ekki rannsakað hvort ákærði hefði ekið bifreiðinni, svo sem með því að taka fingraför. Enn fremur hefði maðurinn ekki farið í alkóhólrannsókn. Þótti dómnum því slíkur vafi í málinu að sýkna bæri manninn af þessum ákærulið. Maðurinn á að baki nokkurn sakaferil og var tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar. Auk fjögurra mánaða fangelsis sem skilorðsbundið er til tveggja ára og sektar var maðurinn sviptur ökurétti í eitt ár.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Fleiri fréttir Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Sjá meira