Samið um að draga Wilson Muuga á flot 26. mars 2007 18:44
Freistað verður þess að draga flutningaskipið Wilsons Muuga af strandstað í maí og verður hafist handa strax eftir páska að þétta skipið, samkvæmt samkomulagi sem er í burðarliðnum milli eigenda og stjórnvalda.Skipið strandaði þann 19. desember, fimm dögum fyrir jól, og hefur því setið fast við Hvalsnes í nærri eitthundað daga. Viðræður hafa staðið yfir milli eigenda og umhverfisráðuneytisins og hyllir nú loks undir samkomulag. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 á að freista þess að draga skipið á flot og gera áætlanir ráð fyrir að undirbúningi þess verði lokið í maí. Áður þarf að þétta göt sem komu á skrokk skipsins og dæla úr því sjó. Er stefnt að því að sú vinna hefjist strax eftir páska. Bæjaryfirvöld í Sandgerði hafa ekkert heyrt af gangi viðræðna. Þau hafa þungar áhyggjur og meta stöðuna svo að menn hafi aðeins tvo mánuði til stefnu.Útgerðin gat beitt fyrir sig lagaákvæði sem takmarkaði útgjöld hennar vegna björgunar skipsins við 72 milljónir króna. Þeir fjármunir eru þegar uppurnir að mestu. Engu að síður mun samkomulagið fela í sér að útgerðin greiði um 20 milljónir til viðbótar en ríkið og tryggingafélagið taka einnig á sig kostnað að koma skipinu á flot.
Mest lesið Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira