Sjónarsviptir að Bítinu 2. febrúar 2007 10:10 Starfsfólk þáttarins eftir síðustu útsendingu þáttarins á Stöð 2 í morgun. MYND/Sigurjón Ólason
Morgunþátturinn Ísland í bítið rann skeið sitt á enda í morgun með síðustu sjónvarpsútsendingu morgunhananna Sirrýar og Heimis. Þátturinn heldur áfram í útvarpi sem Í bítið á Bylgjunni, en tæplega 1400 þættir fóru í loftið á rúmum sjö árum á Stöð 2. Heimir Karlsson hefur verið annar stjórnanda Íslands í bítið í rúm þrjú ár, lengst allra þáttarstjórnanda. Hann segir ákveðna tegund dagskrárgerðar í íslensku sjónvarpi hverfa af skjánum með morgunsjónvarpinu. Hann nefnir sem dæmi spjall við ýmsa ráðgjafa og efnistök á viðkvæmum málefnum, eins og að heimsækja Nóna Sæ, sem slasaðist illa í umferðarslysi og missti systur sína, og koma því fyrir að hann fékk að hitta átrúnaðargoðið sitt Bubba Morthens. Einnig upplýsingar um alls kyns merkileg málefni sem eru á döfinni, eins og ráðstefnur og námskeið, sem annars færu framhjá fólki. Hann segir: "Það er sjónarsviptir að þessu og mörgu öðru í morgunsjónvarpinu." Sigríður Arnardóttir segir að morgunsjónvarpið sé í sumum tilfellum persónulegur félagsskapur áhorfenda, en það sem standi upp úr hjá sér sé hið fornkveðna, að morgunstund gefi gull í mund. Halldóra Ingimarsdóttir hefur verið útsendingastjóri þáttanna í fjögur ár. Hún segir frábæra umsjónamenn og góðan liðsanda hafa gert samvinnuna einstaklega skemmtilega, og ekki hafi fjölbreytt umfjöllun skemmt fyrir; "Eins og þegar við fórum með falda myndavél í vændishús." Þátturinn hóf göngu sína 1. nóvember 1999 með útvarpsfólkinu Þorgeiri Ástvaldssyni, Margréti Blöndal, Snorra Má Skúlason og Guðrúnu Gunnarsdóttur og var þá brotið blað í sögu sjónvarps á Íslandi. Það var blendin tilfinning hjá starfsfólki þáttarins sem skálaði í morgunsárið eftir síðustu útsendinguna.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira