Beckham verður með 1,5 milljón á tímann hjá LA Galaxy 12. janúar 2007 12:01 Beckham á æfingu í með félögum sínum í Madrid í morgun, þeim Robinho (t.v.) og Gago. Beckham endurheimtir treyju nr 7 hjá LA Galaxy. MYND/AP
Beckham hjónin David og Victoria ættu að geta að haft það sæmilegt í Los Angeles næstu fimm árin því að David á von á launahækkun. Samningur Beckhams við LA Galaxy hljóðar upp á fimm sinnum hærri laun en hann hefur haft hjá Real Madrid. Samningurinn, sem er til fimm ára, hljóðar upp á 18 milljarða króna. Þetta þýðir að mánaðarlaun hans hjá LA Galaxy verða 300 milljónir króna og tímakaupið því 1,5 milljón króna. Þá er miðað við venjulega 40 stunda vinnuviku og að ekki sé greitt sérstaklega fyrir vinnu um helgar. Mestur hluti launapakkans felst í árangurstengdum bónusum, og hlutdeild hans í tekjum af seldum verslunarvarningi og miðasölu á nýjum leikvangi LA Galaxy í Carson City í Kaliforníu, sem tekur 27.000 manns í sæti. Sjálf föstu launin nema aðeins um 3,6 milljörðum króna á þessu fimm ára tímabili. En þessir 18 milljarðar eru samt bara dagvinnutekjurnar. Þar fyrir utan heldur Beckham áfram að hafa tekjur af auglýsingasamningum sínum við Adidas, Gillette, Motorola og Pepsi, sem metnar eru á um 2,4 milljarða á ári, eða 12 milljarða króna í viðbót á þessu fimm ára tímabili. Árstekjurnar eru því amk sex milljarðar og mánaðarlaunin 500 milljónir. En þessu til viðbótar má gera ráð fyrir því að fleiri fyrirtæki vilji nú njóta auglýsingakrafta Beckhams eftir að hann verður áberandi á Bandaríkjamarkaði. Fjármálasérfræðingar hafa því verið að gera því skóna, að sögn Daily Mirror, að árstekjur Beckhams gætu farið upp í sem svarar 7 milljörðum króna og að hann yrði þarmeð tekjuhæsti íþróttamaður heims. Golfstjarnan Tiger Woods hefur þann titil nú, en árstekjur hans eru metnar á um 6,7 millljarða króna. Viðræðurnar um samning Bechams hafa staðið í nokkrar vikur milli fyrirtækisins AEG, eiganda LA Galaxy, og 19 Management, sem semur fyrir hönd Beckhams. AEG (ekki þýski þvottavélaframleiðandinn) stendur meðal annars á bakvið uppbyggingu Þúsaldarhvelfingarinnar (Millenium Dome) í London. Simon Fuller, forstjóri 19 Management og maðurinn á bakvið m.a. Spice Girls og Idol stjörnuleitarþættina, segir að koma Backhams til Ameríku eigi eftir að hækka sess knattspyrnunnar þar, og að enginn sé betri sendiherra íþróttarinnar en David Beckham. Beckham er sagður feginn því að fá aftur treyju númer 7 hjá LA Galaxy, sem er sama númer og hann hafði hjá Manchester United. Hjá Real Madrid var hann númer 23 vegna þess að þar var fyrir Figo í 7-treyjunni. TEKJUHÆSTU ÍÞRÓTTAMENNIRNIR 2006 (í milljörðum króna) Tiger Woods 6,7 . Michael Schumacher 4,2 Muhammad Ali 3,9 Phil Mickelson 3,4 Michael Jordan 2,4 Kobe Bryant 2,2 Shaquille O'Neal 2,1 Valentino Rossi 2 Alex Rodriguez 1,9 David Beckham 1,8
Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Fleiri fréttir Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Getur Vinicius fengið brasilísku þjóðina til að elska sig? Leggja inn mótmæli vegna meðferðarinnar á Partey HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ „Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Á sársaukafullar minningar af HM Uppgjör: FH komið á toppinn Uppgjörið: Sterk viðbrögð Grindavíkur/Njarðvíkur skiluðu mikilvægum sigri Stemningin á Times Square engri lík Sjá meira