Náttúruverndarsamtök í Þingeyjarsýslum ekki mótfallin borunum 10. september 2007 10:08 Sigurjón Benediktsson: Náttúruverndarsinnar í Þingeyjasýslum ekki mótfallnir borunum. "
Við erum algera gáttuð á þessum undarlegu tillögum og endalausu kærum frá SUNN. Þessi samtök hafa ekkert rætt við heimamenn," segir Sigurjón Benediktsson talsmaður HÚSGULL, samtaka náttúruverndarsinna á Húsavík. "Við teljum ekkert óeðlilegt við það að kannað sé hve mikil orka er undir þessu svæði." Eins og fram hefur komið í fréttum hafa SUNN og Landvernd mótmælt harðlega rannsóknarborunum Landsvirkjunnar í Gjástykki. Sigurjón segir það með eindæmum að fyrrgreind samtök hafi ekki haft samband við heimamenn vegna þessa. "Við vitum ekki betur en SUNN sé á einhverskonar framfærslustyrk frá umhverfisráðuneytinu sem gerir málið allt hið undarlegasta," segir Sigurjón. Í tilkynningu sem náttúruverndarsamtök í Þingeyjasýslum hafa sent frá sér segir m.a.: "Fyrir hönd raunverulegra náttúrusamtaka í Þingeyjarsýslum mótmælum við því að einhver samtök sem kalla sig SUNN geti talað fyrir hönd umhverfissamtaka á Norðurlandi . Þessi samtök hafa enga fundi haldið um þessi mál og aldrei kynnt skoðanir sínar eða rætt þær innan umhverfissamtaka í Þingeyjarsýslum. Hvað þá kynnt íbúum svæðisins undarlegar tillögur sínar og endalausar kærur. Þessi samtök (SUNN) hafa ekkert umboð frá neðangreindum samtökum til að túlka sjónarmið og viðhorf heimamanna. Hér er um falsanir að ræða sem ekki er hægt að láta ósvarað." Undir þetta rita Skógræktarfélag Húsavíkur, HÚSGULL Húsvísk samtök um gróðurvernd umhverfi landgræðslu og landvernd og SNUÞ samtök um umhverfisvernd og náttúru í Þingeyjarsýslum) en stofnfundur þeirra hefur verið boðaður þann 5. október nk.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira