Innlent

Ellefu teknir fyrir ölvunarakstur um helgina

Ellefu voru teknir fyrir ölvunarakstur um helgina
Ellefu voru teknir fyrir ölvunarakstur um helgina Mynd/ Eyþór

Ellefu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex voru stöðvaðir á laugardag, fjórir á sunnudag og einn í nótt. Níu voru teknir í Reykjavík og tveir í Hafnarfirði. Þetta voru níu karlar á aldrinum 20-48 ára og tvær konur. Önnur er á þrítugsaldri en hin á fimmtugsaldri, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni.

Á sama tímabili voru tveir karlar og ein kona tekin fyrir aka undir áhrifum fíkniefna. Annar karlinn er um tvítugt og hinn rúmlega þrítugur en konan er liðlega tvítug. Karlarnir voru stöðvaðir í Hafnarfirði og Reykjavík en konan í Mosfellsbæ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×