Reynir að skýla sér á bak við nefnd vegna stórra orða 10. september 2007 17:14 MYND/GVA
Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra, segir Össur Skarphéðinsson, núverandi iðnaðarráðherra, reyna að skýla sér á bak við nefnd um vatnalög, sem hann segir Valgerði ekki hafa skipað, til þess að komast út úr vandræðum vegna stórra orða um vatnalögin. Össur benti á á bloggi sínu í gær að Valgerður hefði sem iðnaðarráðherra aldrei skipað nefnd um vatnalögin í samræmi við samkomulag stjórnar og stjórnarandstöðu á Alþingi árið 2006. Miklar deilur voru um vatnalögin, meðal annars hvort verið væri að gera vatn að séreign, og átti nefndin að hafa það hlutverk að fjalla um lögin frá ýmsum sjónarhornum. Valgerður sagði í samtali við Vísi í dag að henni fyndist útspil Össusar broslegt. Össur væri kominn í vandræði vegna stórra orða í vatnalagamálinu, en hann hefði meðal annars lýst því yfir að hann ætlaði að endurskoða vatnalögin sérstaklega með tilliti til eignarréttar. „Honum er það hins vegar ljóst að sjálfstæðismenn eru ekki tilbúnir að fara í grundvallarendurskoðun á lögunum og því er hann að reyna að komast út úr málinu með því að vísa í nefndina," segir Valgerður.Valgerður segir enn fremur að með vatnalögunum hafi ekki orðið grundvallarbreyting heldur formbreyting. Eignarrétturinn á vatni á tilteknum svæðum hafi verið hjá landeigendum allt frá árinu 1923. Þá bendir hún á að verkefni nefndarinnar hafi ekki verið að fara heildstætt yfir vatnalögin heldur skoða þau með tilliti til umfjöllunar um vatn í öðrum lögum og vatnatilskipun Evrópusambandsins svo dæmi séu tekin.Aðspurð segir Valgerður að hún hafi óskað eftir tilnefningu í nefndina á sínum tíma en ekki hafi borist tilnefning frá Vinstri grænum þar sem þeim hafi ekki þótt tímabært að skipa nefndina. Skömmu síðar hafi hún farið úr iðnaðarráðuneytinu yfir í utanríkisráðuneytið og þar með hafi hennar afskiptum af málinu lokið. Aðspurð fagnar hún því ef Össur hyggist skipa nefndina en ítrekar að verkefni nefndarinnar hafi verið takmarkað.
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira