Alcan biður um framlengingu 20. júní 2007 18:45
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir að bærinn muni ekki beita sér fyrir annarri kosningu um stækkun álversins í Straumsvík á kjörtímabilinu, en bendir á að íbúarnir geti knúið fram slíka atkvæðagreiðslu. Talsmenn Landsvirkjunar segja að Alcan verði að leggja fram eitthvað nýtt og raunhæft ef framlengja eigi viljayfirlýsingu um orkusölu til stækkaðs álvers Alcans. Alcan sem rekur álverið í Straumsvík hefur tíu daga til að koma fram með hugmyndir sem sannfæra Landsvirkjun um að Alcan muni kaupa þá raforku sem gert er ráð fyrir í viljayfirlýsingu milli fyrirtækjanna frá því í lok júní í fyrra. Sú yfirlýsing felur í sér kaup Alcans á 60 prósentum þeirrar orku sem fyrirtækið þyrfti til stækkunar álversins. Yfirlýsingin gilti í sex mánuði en var framlengd um aðra sex mánuði um áramót og rennur úr gildi hinn 30. júní næst komandi. Það er af sem áður var þegar stjórnvöld fóru víða um heim til að reyna að fá fyrirtæki til að reisa álver á Íslandi. Nú standa fyrirtækin í röðum eftir raforku og því er ekki víst að Landsvirkjun vilji framlengja viljayfirlýsinguna sem rennur úr gildi um mánaðamótin. Á fundi innlendra og erlendra forráðamanna Alcans með fulltrúum Landsvirkjunar í dag tjáðu fulltrúar Landsvirkjunar fulltrúum Alcans, að það yrði skoðað næstu daga hvort orðið yrði við óskum Alcans um framlengingu viljayfirlýsingarinnar og þá með hvaða skilyrðum. Fulltrúar Alcans gengu líka á fund Össurar Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra síðdegis í dag. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir ekki til umræðu hvað iðnaðarráðuneytið geti gert til að auðvelda Alcan að stækka hjá sér álverið. Fulltrúar fyrirtækisins hafi fyrst og fremst verið að kynna þá kosti sem þeir teldu vera í stöðini, m.a. að stækka álverið út á landfullingu. Össur segir forráðamenn Alcans vera raunsæja varðandi þann kost, sem hann sjálfur telji tæknilega erfiðan og dýran. Þá hafi fulltrúar Alcans einnig rætt um möguleika á byggingu álvers í Þorlákshöfn, en sú staðsetning eigi eftir að fara í umhverfismat og í gegnum mikið ferli og því a en á byrjunarstigi. Á Keilisnesi er land í eigu ríkisins sem á sínum tíma var ætlað í álver. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir að bæjarstjórn muni ekki hafa frumkvæði að því að taka stækkunarmál álversins aftur upp að eigin frumkvæði á þessu kjörtímabili. Íbúarnir geti hins vegar sjálfir kallað fram nýja atkvæðagreiðslu ef 25 prósent kosningabærra manna fara fram á hana, málið sé í þeirra höndum. Bæjarstjórinn átti fund með Alcan í gær og hlustaði þar á hugmyndir fyrirtækisins. "En mér finnst ekkert óeðlilegt við það að menn skoði þessar hugmydnir eins og aðrar. Það er bara eðlilegt að menn skoði hvað er í spilunum. Og það skiptir auðvitað máli í mínum huga að álverið geti áfram verið með starfsemi í bænum," segir Lúðvík. "Ég held að það megi segja það núna að bæjarstjórinn sé kominn út úr skápnum með sína skoðun á þessu máli. Hann hefur frá því niðurstaða lá fyrir í þessu máli tekið þátt í spekúlasjónum um hvernig væri hægt að snúa út úr þessari niðurstöðu," segir Pétur Óskarsson talsmaður Sólar í Straumi og vísar þar til niðurstaðana kosninganna í mars. Lúðvík segist alltaf koma til dyranna eins og hann er klæddur og það hafi ekkert breyst í þeim efnum.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira