Mikið um eiturlyfjaakstur í Skagafirði 20. júní 2007 12:54
Lögreglan á Sauðárkróki hafði í nógu að snúast vegna fíkniefna- og umferðarlagabrota um og eftir helgi. Fimm mál hafa komið upp síðan á föstudag þar sem fólk hefur verið tekið fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna á ýmsum farartækjum. Lögregla stöðvaði för ungrar stúlku í Blönduhlíð á föstudag vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hún var flutt á lögreglustöð til yfirheyrslu. Þangað kom unnusti hennar á bifhjóli að sækja bílinn en hann reyndist hins vera undir áhrifum kannabisefna og var einnig handtekinn. Þá var einn tekinn fyrir eiturlyfjaakstur á Norðurlandsvegi á mánudag en hann mældist á 155 kílómetra hraða á bíl sínum. Enn fremur var annar maður tekinn við Varmahlíð í gær en lögreglumenn veittu undarlegu aksturslagi hans á bifhjóli eftirtekt. Reyndist hann undir áhrifum amfetamíns. Ekki voru þó allir á vélknúnum farartækjum. Lögreglan á Sauðárkróki hafði afskipti að manni aðfaranótt mánudags í eftirlitsferð sinni en hann var á reiðhjóli og hafði kastað frá sér hlutum þegar hann varð var við lögreglu. Lögregla elti manninn og fann á honum fíkniefni og var hann því handtekinn. Lögreglan á Sauðárkróki bendir enn fremur á í tilkynningu sinni að frá áramótum hafi um 500 ökumenn verið stöðvaðir í Skagafirði vegna hraðaksturs og annarra umferðarlagabrota. „Það er því ljóst að þeir sem stunda hraðakstur í umferðinni eru ekki hólpnir þegar þeir koma í Skagafjörðinn, þótt þeir sleppi við hina alræmdu Blönduóslögreglu í Húnavatnssýslunum," segir lögregla.
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira