Oddvitar Árborgar ósáttir við Miðbæjarfélagið 20. júní 2007 12:01
Oddvitar meirihlutans í bæjarstjórn Árborgar eru ósáttir við auglýsingu Miðbæjarfélagsins vegna fundar sem félagið stendur að um skipulag á Selfossi. Í auglýsingunni eru oddvitarnir kynntir til leiks sem frummælendur á fundinum. Þeir hafi hins vegar aldrei verið beðnir um að mæta á fundinn og gera því alvarlegar athugasemdir við fyrirkomulag og boðun fundarins og ætla ekki að mæta. „Á fundinum erum við, oddvitar meirihlutans í Árborg, Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri, Jón Hjartarson forseti bæjarstjórnar og Þorvaldur Guðmundsson formaður bæjarráðs, kynnt sem frummælendur fundarins," segir í sameiginlegri tilkynningu frá oddvitunum. „Þetta er gert án samráðs við okkur. Fundartími, fundarefni og/eða aðrir frummælendur voru ekki kynntir oddvitum bæjarstjórnar áður en auglýsingin var send út." Oddvitarnir segja ennfremur afar óeðlilegt og ófaglegt af forsvarsmönnum Miðbæjarfélagsins að kynna tillögu að deiliskipulagi miðbæjarins án þátttöku hönnuða hennar en engum af höfundum tillögunnar hefur verið boðið að taka þátt í fundinum, að þeirra sögn. „Bæjarstjórn Árborgar hefur unnið faglega að deiliskipulagstillögu miðbæjar Selfoss og hefur meðal annars haldið tvo opna kynningarfundi, nú síðast í byrjun júní. Fundarboðendum hefur verið gerð grein fyrir því að undirrituð verði öll fjarverandi n.k. fimmtudagskvöld og munu því ekki geta mætt til fundarins. Þeim hefur jafnframt verið gerð grein fyrir því að bæjarfulltrúar meirihlutans mæta fúslega til fundar um málefni miðbæjarins sé til hans boðað með eðlilegum fyrirvara og undirbúningi," segja oddvitarnir að lokum.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Sjá meira