Frestaði því að ráða í starf ríkissaksóknara 18. maí 2007 18:42
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hefur frestað því að ráða í starf ríkissaksóknara til næstu áramóta. Fyrirhugað var að nýr maður tæki við starfinu 1. júlí og eru umsækjendur um stöðuna missáttir. Á vef dómsmálaráðuneytisins kemur fram að samkomulag hafi náðst milli Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, og Boga Nilssonar, ríkissaksóknara, um að Bogi sinni starfinu til næstu áramóta. Til stóð að Bogi léti af embættinu 1. júlí næstkomandi. Nokkuð er síða að starfið var auglýst laust til umsóknar en frestur til að sækja um rann út 27. apríl. Fimm sóttu um stöðuna: Hæstaréttarlögmennirnir Brynjar Níelsson og Jóhannes Rúnar Jóhannsson, saksóknararnir Egill Stephensen og Sigríður Friðjónsdóttir og Jón H. B. Snorrason, varalögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Jóhannes Rúnar dró umsókn sína til baka og gaf meðal annars þá ástæðu að hann teldi að þegar væri búið að ráðstafa embættinu. Upphaflega stóð til að ráða í starfið öðrum hvorum megin við kosningahelgina, eftir að umsækjendur höfðu mætt í starfviðtöl, en ráðherra frestaði því. Hann gaf þær skýringar að fara þyrfti betur yfir umsóknirnar til þess til þess að fullnægja góðum stjórnsýsluháttum. Brynjar Níelsson sagði í samtali við fréttastofu að hann væri ósáttur við málsmeðferð ráðherra. Hann hefði engar skýringar fengið á frestuninni og hann biði eftir þeim. Egill Stephensen sagðist vera að kanna stöðu sína en að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið. Ekki náðist í Sigríði Friðjónsdóttur í dag vegna málsins en Jón H. B. Snorrason hafði ekkert um málið að segja þegar leitað var eftir viðbrögðum hans. Fréttastofan reyndi í dag að leita eftir skýringum hjá Birni Bjarnasyni á frestuninni en ekki náðist í hann. Embætti ríkissaksóknara verður auglýst að nýju síðar á árinu. Enginn umsækjendanna gat svarað til um hvort þeir hygðust sækja um aftur.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira