Gagnrýna Landsvirkjun fyrir óeðlileg vinnubrögð 16. júní 2007 16:51 Urriðafossvirkjun. MYND/Landsvirkjun
Landsvirkjun hefur augljóslega beitt sveitarstjórn Flóahrepps miklum þrýstingi til að ná fram markmiðum fyrirtækisins varðandi Urriðafossvirkjun að mati stjórnar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn flokksins sem gerir einnig alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð Landsvirkjunar í málinu. Fram kemur í yfirlýsingunni að Vinstrihreyfingin grænt framboð fagni upphaflegri ákvörðun sveitarstjórnar Flóahrepps að gera ekki ráð fyrir Urriðafossvirkjun í drögum að nýju aðalskipulagi sveitarfélagsins. Flokkurinn harmar hins vegar sinnaskipti sveitastjórnarinnar og telur augljóst að hún hafi verið beitt miklum þrýstingi af hálfu Landsvirkjunar. Í yfirlýsingunni segir að það sé grundvallaratriði að orkufyrirtæki beiti ekki lýðræðislega kjörna fulltrúa og allan almenning óeðlilegum þrýstingi í sókn sinni í náttúruauðlindir þjóðarinnar. Bent er á að um 90 athugasemdir frá 250 einstaklingum hafi borist vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps árið 2004. Þar er gert ráð fyrir tveimur virkjunum, Holta- og Hvammsvirkjun, og að mati Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs er því ljóst að veruleg andstaða er við áformin hjá íbúum og félagasamtök. Þá eru stjórnvöld hvött til að taka engar bindandi ákvarðanir um stóriðju fyrr en heildstæð náttúruverndaráætlun hefur verið lögð fyrir Alþingi og samþykkt á þeim vettvangi.
Mest lesið Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Fleiri fréttir Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Sjá meira