Vilja byggja upp þjónustuíbúðir á gamla Fákssvæðinu 26. október 2007 15:53 MYND/Vilhelm
Samtök aldraðra, sem eru byggingarsamvinnufélag í borginni, hafa sótt um lóðir hjá borginni fyrir fjölbýlishús með þjónustumiðstöð fyrir aldraðra á nokkrum stöðum í borginni, þar á meðal á Fákssvæðinu neðst við Bústaðarveg og í Skerjafirði þar sem áður var birgðastöð Skeljungs. Umsókn samtakanna var lögð fram á fundi borgarráðs í gær og var henni vísað til stýrihóps á vegum borgarinnar sem á að vinna að búsetuúrræðum fyrir eldri borgara. Efla heimaþjónustu við aldraða Björk Vilhelmsdóttir verður formaður stýrihópsins en í honum eiga fimm fulltrúar frá borginni sæti. Björk segir að stýrihópurinn taki við þeim verkefnum sem fyrri meirihluti hafi unnið að í uppbyggingu þjónustuíbúða fyrir aldraða. „Svo ætlum við að efla heimaþjónustu þannig að eldra fólk geti búið þar sem það vill og borgin veiti því þá þjónustu sem það þarf," segir Björk. Hún segir margt í farvatninu og margir hafi óskað eftir lóðum til þess að byggja upp þjónustuíbúðir en verið sé að meta hversu mikil þörfin sé. Þegar það sé búið verði farið í að úthluta lóðum. Aðspurð segir Björk stýrihópinn munu starfa út kjörtímabilið enda þurfi stöðugt að vinna að búsetuúrræðum aldraðra. Íbúðir byggðar á kostnaðarverði Meðal þeirra félaga sem óskað hafa eftir að byggja fjölbýlishús með þjónusturými fyrir aldraða eru Samtök aldraðra bsf. Að sögn Sólveigar Guðmundsdóttur eru Samtök aldraðra byggingarsamvinnufélag. Þar leggur fólk leggur fé í samvinnufélagið sem byggir aftur íbúðir á kostnaðarverði. Félagið er opið öllum Reykvíkingum sem náð hafa 60 ára aldri. Sólveig segir að félagið hafi fengið lóðir frá Reykjavíkurborg endurgjaldslaust og svo sé það í raun fólkið sjálft sem byggi upp íbúðirnar með því að leggja fram fé í þær. Félagið hafi þegar byggt upp 400 íbúðir í Reykjavík og var nýjasta húsið, sem er við Sléttuveg í Fossvogi, tekið í notkun í lok mars. „Fólk borgar kostnaðarverð fyrir íbúðina og afborganirnar eru jafnar og dreifast yfir 18 mánuði," segir Sólveig og bendir á að þetta geri fólki kleift að selja fyrra húsnæði sitt skömmu áður en það fær afhent nýjar íbúð í fjölbýlishúsi Samtaka aldraðra. Borgin rekur þjónustumiðstöðvar Í fjölbýlishúsunum er svo að finna þjónustumiðstöðvar á neðstu hæðinni þar sem fólk getur keypt máltíðir og fengið ýmsa þjónustu, þar á meðal læknisþjónustu. Samið hafi verið við borgina um að reka þessa þjónustu. Þá eru miðstöðvarnar opnar einnig fyrir gamalt fólk sem býr í nágrenni fjölbýlishúsanna. Sólveig segir frekari uppbyggingu á vegum Samtaka aldraðra í bígerð. Samtökin hafi fengið vilyrði frá borginni fyrir lóð fyrir neðan Sléttuveg, skammt frá þeim stað þar sem nýjasta hús samtakanna er risið. „Við vonumst eftir að samningar um þá lóð takist þannig að við getum haldið áfram uppbyggingu," segir Sólveig. Til viðbótar hefur félagið óskað eftir lóðum undir fjölbýlishús ásamt þjónusturými á Fákssvæðinu neðst við Bústaðaveg, við Selás og í Skerjafirði þar sem áður var birgðastöð Skeljungs.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira