Sport

Ferill Martin Jol

Martin Jol var alltaf í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Tottenham
Martin Jol var alltaf í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Tottenham NordicPhotos/GettyImages

Martin Jol hefur átt litríkan feril sem leikmaður og knattspyrnustjóri. Hér fyrir neðan er stiklað á stóru yfir feril kappans.

1956: Fæddist í Haag í Hollandi

1973: Byrjar að spila með heimaliði sínu Den Haag

1976: Bikarmeistari með Den Haag

1977: Seldur til Bayern Munchen í Þýskalandi

1979: Snýr aftur til Hollands og fer að leika með Twente

1980: Spilar sinn fyrsta landsleik fyrir Holland

1981: Keyptur til West Brom á Englandi þar sem honum er fengið að fylla skarð Bryan Robson sem fór þá til Manchester United.

1984: Seldur til Coventry

1985: Lýkur ferlinum með heimaliði sínu Den Haag í Hollandi

1991: Tekur við áhugamannaliði ADO Den Haag og lyftir því upp um deild

1995: Þjálfar untandeildarlið Scheveningen, sem vinnur utandeildina.

1996: Tekur við Roda JC

1997: Gerir Roda að bikarmeisturum - Fyrsti titill liðsins í 30 ár.

1998: Fer til Waalwijk og tekur botnliðið úr fallslagnum í keppni um Evrópusæti þrátt fyrir fjárskort félagsins.

2001: Útnefndur þjálfari ársins hjá íþróttafréttamönnum

2002: Þjálfari ársins að mati leikmanna og þjálfara.

2003: Heldur því fram að Alex Ferguson hafi rætt við sig um að gerast aðstoðarmaður sinn eftir að Carlos Queiroz hættir.

2004: Ráðinn aðstoðarmaður Jaques Santini hjá Tottenham

5. nóvember: Tekur við Tottenham tímabundið eftir að Santin hætti óvænt hjá félaginu. Fyrsti leikur hans er gegn Charlton.

8. nóvember: Ráðinn í fullt starf sem knattspyrnustjóri Tottenham.

Desember: Útnefndur stjóri mánaðarins í úrvalsdeildinni.

2005: Skrifar undir þriggja ára samning við Tottenham.

2006: Tottenham nær fimmta sæti í úrvalsdeildinni og tryggir sér sæti í Evrópukeppni í fyrsta skipti frá stofnun deildarinnar - þar sem liðið missti af Meistaradeildarsæti á síðasta degi mótsins eftir að þorri liðsins fékk magakveisu og tapaði fyrir West Ham. Arsenal hirðir fjórða sæti á kostnað granna sinna eftir að Tottenham hafði verið í fjórða sætinu lengst af leiktíðinni.

2007: Þrátt fyrir að missa Michael Carrick til Man Utd nær Tottenham aftur fimmta sætinu og Evrópusæti - auk þess að ná í undanúrslit enska bikarsins og í átta liða úrslit í deildarbikarnum og Uefa keppninni.

Júní: Tottenham pungar út 16 milljónum punda í Darren Bent

Ágúst: Léleg byrjun á tímabilinu verður til þess að forráðamenn Tottenham ræða við Juande Ramos hjá Sevilla um að taka við liðinu. Málið lekur í blöðin.

21. Ágúst: Jol er minntur á það á fundi með stjórninni að hún ætlast til þess að liðið nái Meistaradeildarsæti í deildinni.

22. október: Tottenham tapar 3-1 fyrir Newcastle. Liðið er í botnbaráttu og sagt er að framherjinn Dimitar Berbatov hafi farið í fýlu af því Jol hafði hann ekki í byrjunarliðinu.

25. október: Tottenham staðfestir að Jol hafi verið látinn taka pokann sinn ásamt þjálfara sínum Chris Houghton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×