Áfrýjar sýknu í tálbeitumáli til Hæstaréttar 26. október 2007 12:24
Ríkissaksóknari hyggst áfrýja sýknudómi yfir þremur karlmönnum sem allir settu sig í samband við tálbeitu Kompás í vor. Mennirnir hugðust hitta tálbeituna sem þeir töldu vera 13 ára stúlku í kynferðislegum tilgangi. Í janúar á þessu ári setti tálbeita fréttaskýringaþáttarins Kompás auglýsingu á einkamál.is. Yfir hundrað karlmenn höfðu samband við það sem þeir töldu vera þrettán ára gamla stúlka, meirihluti þeirra í kynferðislegum tilgangi. Eftir nokkur samskipti á samskiptaforritinu msn komu fimm mannanna heim til stúlkunnar þar sem ritstjóri Kompáss tók á móti þeim. Miklar umræður fóru af stað í þjóðfélaginu, meðal annars á Alþingi um hvort lögreglu ætti að vera heimilt að nota tálbeitu á þennan hátt og hvort tilraunaákvæði almennra hegningarlaga myndi ná yfir brotið. Lögreglan krafði Kompás um öll gögn sem þáttargerðarmenn bjuggu yfir um málið og í kjölfarið afhentu þeir lögreglu netföng og ljósmynd af mönnunum sem og afrit af þættinum sjálfum eins og hann birtist í sjónvarpi. Rannsókn lögreglu leiddi svo til þess að þrír mannanna voru ákærðir fyrir tilraun til kynferðisbrots. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði mennina í fyrradag meðal annars á þeim grundvelli að ekki væri hægt að nota gögnin sem lögregla fékk frá Kompási þar sem lögreglu er óheimilt samkvæmt reglugerð að beita tálbeitu við gagnaöflun. Ríkissaksóknari hefur nú ákveðið að áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Þar á bæ telja menn reglugerðina sem sýknudómurinn byggir á ekki eiga við gögn Kompáss heldur eingöngu við gögn sem lögregla aflar með notkun tálbeitu. Rannsókn á hendur hinum tveimur sem komu á fund tálbeitunnar stendur enn yfir, meðal annars yfir Ágústi Magnússyni sem var að ljúka 5 ára afplánun á dómi á Vernd fyrir kynferðisbrot gegn 5 drengjum.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Ráðningarferli lögreglustjóra lá niðri vegna sumarleyfa Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Fleiri fréttir Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Ráðningarferli lögreglustjóra lá niðri vegna sumarleyfa Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Sjá meira