Innlent

Gríðarlegar rigningar í gærkvöldi

Vatn flæddi yfir þjóðveginn í Fáskrúðsfirði og í Álftafirði á Suðuausturlandi í gærkvöldi vegna gríðarlegrar rigningar. Þá höfðu dælur ekki undan í kjallara einnar byggingar á svæði Fjarðaáls og varð að kalla til slökkvilið með auka dælur. Engar skemmdir urðu í húsinu.

Mikið hvassviðri var samfara rigningunni eystra og fauk hluti af þaki atvinnuhúss á Fáskrúðsfirði á haf út og útihús að bænum Randversstöðum í Breiðdal stór skemmdust. Í uppsveitum Árnessýslu flæddi yfir heimkeyrslur að tveimur bæjum og bændur smöluðu kindum og hestum á örugga staði. Þar var víða eins og yfir hafsjó að líta í gærkvöldi.

Mikill vöxtur er í Hvítá þannig að Ölfusá mun að líkindum enn vaxa í dag. Það er þó engin hætta á flóðum á Selfossi. Hvergi er vitað um alvarlegt tjón vegna veðursins, sem gengið er niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×